Jón Dagur breyst úr floppi í stjörnu Sindri Sverrisson skrifar 18. september 2026 12:31 Jón Dagur Þorsteinsson og Lionel Messi skiptust á treyjum eftir vináttulandsleik Íslands og Argentínu í sumar. Getty/Andrew J. Clark Eftir að hafa átt afar erfitt uppdráttar hjá Herthu Berlín á síðustu leiktíð og verið lánaður til norska félagsins Brann þá hefur Jón Dagur Þorsteinsson farið á kostum í upphafi nýs tímabils í Þýskalandi.
Jón Dagur er á sínum stað í nýjasta landsliðshópi Íslands sem kynntur var í vikunni og ætti að mæta fullur sjálfstrausts á Laugardalsvöll þar sem Ísland mætir Eistlandi á laugardaginn eftir viku. Hann hefur nefnilega unnið sér inn byrjunarliðssæti hjá Herthu Berlín, skorað og lagt upp, og átt sinn þátt í því að liðið hefur unnið alla sex leiki sína á keppnistímabilinu til þessa. Liðið trónir því á toppi þýsku 2. deildarinnar með fullt hús stiga. Í þýska miðlinum BZ-Berlin síðasta föstudag segir að Jón Dagur hafi breyst „úr floppi í stjörnu“. Hann hafi bara skorað eitt mark í 33 leikjum á síðustu leiktíð, úr víti, og átt tvær stoðsendingar en sé þegar búinn að bæta það á þessari leiktíð með einu marki og þremur stoðsendingum. Hann sé í raun og veru að spila snilldarlega vel. BZ-Berlin fékk annan Íslending sem klæddist treyju Herthu Berlín með svo miklum sóma á sínum tíma, Eyjólf Sverrisson, til að tala um Jón Dag sem Eyjólfur þekkir ansi vel. „Jón er búinn að losa handbremsuna. Þessi frammistöðusprenging kemur mér ekki á óvart. Ég samgleðst Jóni, sem ég þjálfaði í fyrra starfi mínu sem landsliðsþjálfari U21 árs liðs Íslands. Hann er harðsnúinn víkingur sem vill alltaf vinna. Sannkallaður liðsmaður með mikinn karakter, baráttuhjarta og gríðarlega hlaupagetu. Dugnaður hans gerir hann einstakan. Frábær fyrirmynd, líka fyrir ungu leikmenn Herthu. Hann er virkilega góður leiðtogi,“ sagði Eyjólfur við BZ-Berlin. Jón Dagur lætur nú ljós sitt skína í treyju Herthu Berlín.Getty/Swen Pförtner Eyjólfur segir ljóst að tíminn hjá Brann, þar sem Jón Dagur lék undir stjórn Freys Alexanderssonar, hafi gert Jóni Degi gott. „Jón þurfti smátíma til að aðlagast í Berlín. Ferskt upphaf í hálft ár í Noregi gerði honum gott því þar fékk hann meiri spiltíma og gat endurheimt sjálfstraustið. Hann gafst aldrei upp. Maður getur dottið en maður verður að standa upp aftur. Það sýnir hann. Ég vona að það haldi áfram að ganga svona vel hjá honum og Herthu svo við getum öll fagnað í lokin,“ sagði Eyjólfur. Jón Dagur verður næst í eldlínunni annað kvöld þegar Hertha Berlín sækir Dresden heim, áður en hann kemur svo til móts við félaga sína í íslenska landsliðinu í næstu viku.
Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira