Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 17. september 2026 15:38 Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur. vísir/einar Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum.
Þetta staðfestir Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, í samtali við fréttastofu. Greint var frá því í morgun að til stæði að leggja fram tillögu á fundi ráðsins um að afturkalla lóðaúthlutanir til Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Talsmenn félaganna báru fyrir sig í samtali við fréttastofu í dag að þeir hefðu ekkert erindi fengið frá Reykjavíkurborg síðustu vikur. Samkvæmt lögum þarf að veita hlutaðeigandi aðila andmælarétt áður en tekin er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun í máli sem varðar viðkomandi. Einar segir að erindi hafi vissulega verið send trúfélögunum í gegnum réttar boðleiðir. Félögin hafi greinilega ekki séð póstinn frá borginni. „Við fengum bréf inn í borgarráð frá lögmanni Félags múslima á Íslandi þar sem hann lýsti því að þeir hefðu ekki fengið neina tilkynningu. Þannig að við ákváðum að fresta afgreiðslu málsins. Það er eðlilegt að menn njóti andmælaréttar þegar við erum að taka stjórnsýsluákvarðanir,“ segir Einar og heldur áfram: „Við sendum þeim póst 18. ágúst, bæði Félagi múslima á Íslandi og rétttrúnaðarkirkjunni. Þeir virðast ekki hafa séð þann póst, gott og vel, við gefum þeim bara aðeins lengri andmælarétt og eigum þá í samtali. Þess ber að geta að báðir aðilar hafa haldið á þessum lóðum um árabil hér á Suðurlandsbraut frá árinu 2013. Allir framkvæmdafrestir eru löngu liðnir og við teljum mikilvægt að koma þessum lóðum í hendur þeirra sem vilja byggja.“ Erindið hafi verið sent í gegnum island.is sem sé lögmæt leið til að tilkynna stjórnvaldsákvarðanir. „Þannig gerðum við það eins og við höfum bara gert í gegnum tíðina og ég kann engar skýringar á því að þeir hafi ekki séð þessa tilkynningu. Ég bara hvet alla til þess að fylgjast vel með ísland.is.“ Hann segir mikilvægast að lóðir komist í hendur þeirra sem ætli í raun að byggja. Um verðmæti í eigu borgarbúa sé að ræða. Því sé mikilvægt að eitthvað komi út úr sölu lóða þeim til hagsbóta.
Reykjavík Skipulagsmál Jarða- og lóðamál Trúmál Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira