Tónlist

Írar ekki með í Euro­vision annað árið í röð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Norsk-írska söngkonan Emmy tók þátt í Eurovision fyrir Írland árið 2025 í Basel. Írar hafa ekki tekið þátt síðan þá. Myndin er tekin í aðdraganda keppninnar árið 2025 og má sjá palestínska fánann í bakgrunni.
Norsk-írska söngkonan Emmy tók þátt í Eurovision fyrir Írland árið 2025 í Basel. Írar hafa ekki tekið þátt síðan þá. Myndin er tekin í aðdraganda keppninnar árið 2025 og má sjá palestínska fánann í bakgrunni. Vísir/EPA

Írska ríkissjónvarpið, RTÉ, hefur staðfest að Írland muni ekki taka þátt í Eurovision í ár og að þau muni heldur ekki sýna keppnina á sjónvarpsstöð sinni. Írar tóku ekki þátt í Eurovision í fyrra eins og Ísland, Holland og Spánn.

Í frétt RTÉ segir að í yfirlýsingu hafi komið fram að afstaða RTÉ sé óbreytt og vísað til stöðunnar á Gasa og mannúðarkrísunnar sem enn er í gangi þar vegna stríðs Ísraela á Gasa. Þá segir einnig í yfirlýsingunni að RTÉ hafi þungar áhyggjur af því að enn sé alþjóðlegum fjölmiðlum hindraður aðgangur að svæðinu.

Greint var frá því fyrr í þessum mánuði að stjórn Ríkisútvarpsins hafi ekki tekið neina ákvörðun um þátttöku Íslands í keppninni og að líklega muni það ekki liggja fyrir fyrr en í desember.

Darina Nikolaeva Yotova, eða Dara, sigraði keppnina í vor með laginu Bangaranga sem haldin var í Vín í Austurríki. Keppni næsta árs verður í Burgas í Búlgaríu frá 11. til 13. maí.

Verði saknað

Haft er eftir Martin Green, framkvæmdastjóra keppninnar, í frétt RTÉ að Eurovision þyki miður að þau ætli ekki að taka þátt en að þau virði ákvörðunina.

„Þau eru enn mikils metinn meðlimur fjölskyldunnar og verður saknað,“ bætti hann við og að EBU, samband evrópskra sjónvarpsstöðva, myndi halda áfram að vera í samtali við RTÉ og að þau voni að þau snúi aftur í keppnina síðar.

Írar, eins og aðrar þjóðir sem ekki voru með í fyrra, tóku þá ákvörðun eftir að EBU tilkynnti að Ísraelum yrði leyft að taka þátt en hávært ákall var frá þessum þjóðum um að þeim yrði vísað úr keppni líkt og Rússum var við innrás í Úkraínu.

Hollendingar hafa áður tilkynnt að þeir ætli ekki að taka þátt í keppninni á næsta ári. Ekki er búið að tilkynna hverjir taka þátt. EBU tilkynnti fyrr á þessu ári að nýjar reglur muni vera í gildi í Eurovision-keppninni á næsta ári sem kveða meðal annars á um að flytjendur þurfi að vera eldri en átján ára og að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.

Írar tóku fyrst þátt í Eurovision árið 1965 og hafa unnið sjö sinnum, síðast árið 1996 þegar Eimear Quinn sigraði með lagið The Voice.


Tengdar fréttir

Eurovision haldið í Burgas í Búlgaríu

Eurovision, evrópska söngvakeppnin, verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu 11. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara sigraði keppnina með lagið Bangaranga í maí í Vínarborg í maí á þessu ári. 

Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision

Ísraelska hárvörufyrirtækið Moroccanoil hefur tekið ákvörðun um að framlengja ekki samning sinn við Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Samstarf keppninnar og ísraelska fyrirtækisins hefur verið umdeilt í gegnum tíðina, rétt eins og þátttaka Ísraels í keppninni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.