Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Árni Sæberg skrifar 17. september 2026 10:24 Una Jónsdóttir er forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans. Vísir/Vilhelm Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23 prósent í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6 prósentum í 5,8 prósent.
Í pistli þess efnis á vef bankans segir að eldsneytisverð hafi hækkað snarp um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti komi að flugfargjöld til útlanda lækki í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar muni svo einnig hafa áhrif í mánuðinum. „Það eru tveir liðir sem hafa mest áhrif á spána í september. Mikil hækkun á eldsneyti hefur langmest áhrif til hækkunar, en á móti spáum við lækkun á flugfargjöldum til útlanda líkt og venjan er í septembermánuði vegna árstíðasveiflu.“ Eldsneyti hækkar um 17 prósent og 25 prósent dýrara að fljúga en í fyrra Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24 prósentum í 11 prósent hafi fallið úr gildi um síðustu mánaðamót. Sú breyting ein og sér hækki eldsneytisverð um tæplega 12 prósent. Þar að auki hafi heimsmarkaðsverð á eldsneyti hækkað umtalsvert frá síðasta mánuði og deildin spái því að verð á bensíni og díselolíu hækki um 16,8 prósent á milli mánaða, í takt við verðathugun deildarinnar. Flugfargjöld til útlanda lækki yfirleitt töluvert í ágúst og september eftir háannatíma í ferðaþjónustunni yfir sumarið. Deildin spái því að þau lækki um 16,7 prósent í september og hafi mest áhrif til lækkunar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verði 25 þó prósent dýrara að fljúga til útlanda í september í ár en í september í fyrra. Heilsan hækkar Þá segir að komugjald á heilsugæslu á dagvinnutíma hafi hækkað um síðustu mánaðamót úr 500 krónum í 1.000 krónur og gjald á læknavakt, utan dagvinnutíma, hækkað úr 3.100 krónum í 3.500 krónur. Þá hafi gjöld vegna leghálsskimunar og brjóstakrabbameinsskimunar einnig hækkað. „Við spáum því að liðurinn „heilsa“ hækki við þetta um 1,1% á milli mánaða og framlagið verði 0,04 prósentustig til hækkunar á vísitölunni. Matið er þó háð nokkurri óvissu, þar sem sundurliðun voganna breyttist um áramótin þegar nýtt flokkunarkerfi var tekið upp.“ Nýtt komugjald fyrir sjúkra-, iðju- og talþjálfun hafi einnig verið tekið upp nú í september en samkvæmt Hagstofunni komi sú breyting inn í mælingar í næsta mánuði. „Við áætlum að sú breyting hafi einnig um 1% áhrif til hækkunar á heilsuliðnum í október og heildaráhrifin eru því aftur 0,04 prósentustig, gangi spáin eftir.“
Bensín og olía Verðlag Landsbankinn Efnahagsmál Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira