Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 15. september 2026 18:00 Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fagnaði gangsetningu fyrsta vindorkuvers landsins í dag. Vísir/Samsett Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku og loftslagsráðherra segir að laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptabyltingunni. Hann kveðst hæstánægður með ferlið og segir engan afslátt hafa verið gefinn af umhverfiskröfum eða samráði við nærsamfélagið.
Fjórtán vindmyllur voru gangsettar í Vaðöldu í dag, sem er helmingur þeirra 28 vindmylla sem eiga að vera komnar í fullan rekstur fyrir lok næsta árs. Athöfn fór fram við tilefnið þar sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra gangsetti fyrstu vindmylluna. Sátt nærsamfélaga úrslitaþáttur Um 250 manns voru viðstödd gangsetninguna og ávörp fluttu stjórnarformaður og forstjóri Landsvirkjunnar, auk Jóhanns Páls Jóhannssonar. „Þetta er mikill gleðidagur og stór dagur fyrir orkumál á Íslandi að þessi orkugjafi sé að bætast svona af alvöru við orkubúskapinn okkar. Þetta skapar líka möguleika til aukins sveigjanleika í orkukerfinu með því að láta vindinn og vatnsaflið vinna saman. Þannig að þetta er gríðarlega spennandi og búið að halda vel á spöðunum á framkvæmdasvæðinu og í Umhverfis- og orkustofnun. Ég held að við höfum nú eiginlega slegið met þegar kemur að málshraða við veitingu starfsleyfis en það er þá líka vegna þess að það var staðið mjög vel að þessu öllu saman og þetta gert án þess að gefa neinn afslátt af umhverfiskröfum og almenningssamráði,“ sagði Jóhann Páll þegar blaðamaður Vísis náði af honum tali eftir ræðuhöldin. Jafnframt sagði hann að Vaðalda hafi verið vel valinn staður til þessa fyrsta vindorkuvers landsins og að tekist hafi að fella löggjöf um vindorku undir rammaáætlun. Hann er þó meðvitaður um að starfsemin sé umdeild. „Þetta eru stór og ágeng mannvirki. Mér finnst þau reyndar mjög falleg og tignarleg en það er mikilvægt að þetta sé í sátt við nærsamfélagið og að það sé gætt að áhrifum á fuglalíf, áhrifum á friðlýst svæði, opin víðerni og þess vegna einmitt negldum við það í lög afstaða nærsamfélagsins, afstaða sveitarfélaga, og ekki bara þeirra sveitarfélaga sem hýsa viðkomandi virkjunarkosti heldur líka nærliggjandi sveitarfélaga, að það yrði úrslitaþáttur þegar kemur að vali á svæði,“ sagði hann. Leiðist „trumpísk“ orðræða Jóhann Páll hvetur andstæðinga vindorkuvera að koma og berja Vaðölduver augum. „Ég held að við þurfum að fara varlega og reyna að gera þetta í eins mikilli sátt við náttúru og nærumhverfi og hægt er. Vindorkuver eiga einvörðungu að rísa á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við náttúru og nærsamfélag og þar sem þessi starfsemi er til þess fallin að styðja við atvinnu- og byggðaþróun,“ sagði Jóhann Páll. Í ávarpi sínu nefndi Jóhann Páll að honum leiddist „trumpísk“ orðræða andstæðinga vindorkuvera. „Mér leiðist stundum þegar er talað eins og vindmyllur séu bara í eðli sínu slæmar. Þetta er sú orkuvinnsla sem er í raun, ásamt sólarorkunni, að bjarga heiminum . Þetta gegnir algjöru grundvallarhlutverki í orkuskiptabyltingunni í heiminum,“ sagði hann. Vindmyllur séu táknmynd orkuskiptingarinnar. „Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Vindorka Vindorkuver við Vaðöldu Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skeiða- og Gnúpverjahreppur Orkumál Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira