Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 14. september 2026 17:15 Fjórfaldi Ólympíumeistarinn Titmus er á meðal þeirra sem gagnrýna herferð Sweeney harðlega. Samsett/Getty Auglýsingaherferð leikkonunnar Sydney Sweeney fyrir íþróttaveðmálafyrirtækið Novig hefur vakið hörð viðbrögð íþróttakvenna.
Í herferðinni er Sweeney nakin og setur sig í stellingar nokkurra mismunandi íþróttagreina. Herferðin hefur sætt gagnrýni fyrir að kynlífsvæða íþróttir kvenna. Á meðal gagnrýnenda er fyrrverandi Ólympíufarinn og sundkonan Ariarne Titmus segist hafa haldið að svona „kjaftæði“ væri í fortíðinni. „Ég get ekki lýst því hvað ég er reið yfir því að sjá þetta,“ sagði fjórfaldi Ólympíumeistarinn á Instagram-síðu sinni. „Þetta er ekki aðeins högg í andlitið fyrir hverja þá konu sem hefur tileinkað líf sitt því að verða best í sinni grein, heldur fyrir allar konur sem njóta íþrótta fyrir það sem þær eru; samvinna, vinátta, staðfesta og samheldni.“ „Hvernig búum við enn í heimi þar sem kvenlíkaminn er fjárnýttur og kynlífsvæðing kvennaíþrótta er enn til?“ spyr Titmus. Ekki alltaf sexý Breski spretthlauparinn og fjórfaldi Evrópumeistarinn Amy Hunt tjáði sig einnig eftir að hafa lent í fjórða sæti í 200 metra hlaupi í keppni um helgina. Hún varpaði orðum sínum beint til Sweeney í viðtali eftir keppnina í gærkvöld: Hunt sendi Sweeney skýr skilaboð í viðtali við BBC í gær.Shaun Botterill/Getty Images „Sydney Sweeney, svona líta konur í íþróttum út,“ sagði Hunt við breska ríkisútvarpið, BBC. Hún vísaði þá til tíma sigurvegarans Melissu Jefferson-Wooden, sem kom í mark á 21,47 sekúndum í hlaupi gærkvöldsins, fjórða besta tíma sögunnar. „21,4. Vöðvar. Mikil vinna, blóð, sviti, tár,“ sagði Hunt og bætti við: „Þegar þú ert kona í íþróttum er það ekki fallegt. Það er ekki þokkafullt og það er ekki alltaf sexý, það er alveg klárt.“ Skaðlegt fyrir allar konur Ástralska brimbrettakonan Feilicity Palmateer er litlu ánægðari með herferðina. „Eftir situr algjör vantrú. Þetta eru rosalega mikil vonbrigði. Hversu mikið er hægt að draga kvennaíþróttir niður með einni 40 sekúndna auglýsingu?“ spyr Palmateer og bætir við: „Þessi auglýsing Sydney Sweeney er mjög skaðleg, sérstaklega fyrir ungar konur sem eru að hefja sinn íþróttaferil, og bara fyrir konur í íþróttum og konur yfirhöfuð.“
Auglýsinga- og markaðsmál Hollywood Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Sjá meira