Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Sindri Sverrisson skrifar 14. september 2026 10:03 Muhamed Alghoul nefbrotnaði í sumar eftir átök á æfingu Keflvíkinga. vísir/Viktor Slagsmál á æfingu Keflvíkinga í sumar vöktu talsverða athygli. Fyrirliði þeirra fagnar kappsemi á æfingum og segir atvikið ekki hafa truflað liðið á sinni frábæru vegferð á leiktíðinni.
Keflavík hefur komið öllum á óvart með framgöngu sinni í Bestu deild karla í fótbolta í sumar og nú er ljóst að liðið spilar í efri helmingnum á lokakaflanum, þar sem fyrsti leikur verður við Íslandsmeistara Víkings í Víkinni í kvöld. Keflvíkingar hafa þurft að takast á við áföll eins og 6-1 tap gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í lok maí og brotthvarf miðvarðarins frábæra Davíðs Helga Aronssonar, en gert það með fumlausum hætti. Slagsmál á æfingu í lok júlí, þar sem Alpha Conteh nefbraut Muhamed Alghoul, höfðu sömuleiðis ekki verri áhrif á frammistöðu liðsins en svo að Keflavík vann þrjá af næstu fjórum leikjum. En hvernig var fyrir leikmenn að takast á við þetta? „Ég er ekki viss um að þetta hafi truflað neinn. Ég held að við höfum unnið næsta leik og jafnvel tvo í röð. Þetta er bara atvik á æfingu, litlar stimpingar með stórum afleiðingum. Áfram gakk,“ segir Sindri Snær Magnússon, fyrirliði Keflavíkur. Klippa: Eitt högg breytti ekki andanum í klefanum „Þessir leikmenn hafa staðið sig frábærlega vel og þó að þeir hafi lent í stimpingum þá held ég að þeir hafi stigið upp báðir tveir. Þetta er bara partur af fótbolta og það er bara betra að það sé einhver kappsemi á æfingum líka sem ýtir við mönnum,“ segir Sindri. Slagsmálin, sem raunar stóðu bara yfir í örfáar sekúndur, hafi því ekki dregið neinn dilk á eftir sér. Þar búa Keflvíkingar eflaust líka að því að hafa haft stóran kjarna leikmanna saman í hópnum síðustu ár sem þekkist vel. „Það er bara góður andi í klefanum og svo er verið að berjast á æfingum líka. Þar er ekkert gefins. Það er bara partur af að vera með stóran hóp, fleiri að berjast um byrjunarliðssæti og því miður varð eitt högg partur af því. En það er bara áfram gakk og við hlæjum að því í dag.“
Besta deild karla Keflavík ÍF Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Fleiri fréttir Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Sjá meira