Takk Inga Sæland Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar 10. september 2026 07:30 Í mörg ár hef ég barist fyrir bættum kjörum og aðbúnaði eldra fólks. Sem varaþingmaður í stjórnarandstöðu skrifaði ég ótal greinar og flutti ræður á fjölda funda til að vekja athygli á þeirri óásættanlegu stöðu sem ríkti í málefnum eldri borgara. Sérstaklega þeim skorti sem var á hjúkrunarrýmum. Það var á brattann að sækja og stundum var eins og talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda. Í fimm ára áætlun fyrrverandi ríkisstjórnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019–2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu yrði fjölgað um rúmlega 540 og þau yrðu því 3.430 í lok árs 2024. Raunin varð allt önnur. Hjúkrunarrýmum fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili. Á sama tíma lengdust biðlistar vegna fjölgunar aldraðra. Nú er staðan allt önnur. Frá því núverandi ríkisstjórn tók við og Inga Sæland formaður Flokks fólksins tók yfir málaflokk hjúkrunarheimila er nú þegar búið að taka 214 ný rými í notkun. Yfir 500 rými til viðbótar eru í byggingarferli og gert er ráð fyrir að 292 ný rými verði tekin í gagnið á næsta ári. Þetta þýðir að árið 2027 hefur ríkisstjórnin undir forystu Ingu lokið við 506 ný rými. Þetta eru 600 prósent fleiri rými á rúmum tveimur en þau 69 rými sem síðasta ríkisstjórn kom í gagnið. Og þetta er bara byrjunin. Samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar mun uppbyggingin færast enn meira í aukana undir lok kjörtímabilsins. Áætlað er að hvorki fleiri né færri en 1.350 ný rými verði komin í notkun árið 2030. Þetta er sannkallað þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma sem hefði aldrei orðið að veruleika án óbilandi baráttuvilja Flokks fólksins og formanns okkar, Ingu Sæland. Þegar við gengum til stjórnarsamstarfsins var það gert með það skýra markmið að fylgja kjörorði flokksins um „fólkið fyrst, svo allt hitt.“ Því hefur verið fylgt eftir af fullum þunga. Inga tryggði að þessi uppbygging yrði algjört forgangsmál. Hún hefur sýnt að hægt er að treysta því að Flokkur fólksins standi við stóru orðin þegar á hólminn er komið. Fyrir þá forystu og þrautseigju vil ég þakka henni af öllu hjarta. Við erum loksins að sýna eldri kynslóðinni þá virðingu sem hún á skilið. Við lofuðum aðgerðum; þjóðarátaki og höfum og ætlum að standa við það. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Flokkur fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Eldri borgarar Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Skoðun Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Í mörg ár hef ég barist fyrir bættum kjörum og aðbúnaði eldra fólks. Sem varaþingmaður í stjórnarandstöðu skrifaði ég ótal greinar og flutti ræður á fjölda funda til að vekja athygli á þeirri óásættanlegu stöðu sem ríkti í málefnum eldri borgara. Sérstaklega þeim skorti sem var á hjúkrunarrýmum. Það var á brattann að sækja og stundum var eins og talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda. Í fimm ára áætlun fyrrverandi ríkisstjórnar um uppbyggingu hjúkrunarrýma 2019–2024 var lagt upp með að hjúkrunarrýmum á landsvísu yrði fjölgað um rúmlega 540 og þau yrðu því 3.430 í lok árs 2024. Raunin varð allt önnur. Hjúkrunarrýmum fjölgaði einungis um 69 á þessu tímabili. Á sama tíma lengdust biðlistar vegna fjölgunar aldraðra. Nú er staðan allt önnur. Frá því núverandi ríkisstjórn tók við og Inga Sæland formaður Flokks fólksins tók yfir málaflokk hjúkrunarheimila er nú þegar búið að taka 214 ný rými í notkun. Yfir 500 rými til viðbótar eru í byggingarferli og gert er ráð fyrir að 292 ný rými verði tekin í gagnið á næsta ári. Þetta þýðir að árið 2027 hefur ríkisstjórnin undir forystu Ingu lokið við 506 ný rými. Þetta eru 600 prósent fleiri rými á rúmum tveimur en þau 69 rými sem síðasta ríkisstjórn kom í gagnið. Og þetta er bara byrjunin. Samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar mun uppbyggingin færast enn meira í aukana undir lok kjörtímabilsins. Áætlað er að hvorki fleiri né færri en 1.350 ný rými verði komin í notkun árið 2030. Þetta er sannkallað þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma sem hefði aldrei orðið að veruleika án óbilandi baráttuvilja Flokks fólksins og formanns okkar, Ingu Sæland. Þegar við gengum til stjórnarsamstarfsins var það gert með það skýra markmið að fylgja kjörorði flokksins um „fólkið fyrst, svo allt hitt.“ Því hefur verið fylgt eftir af fullum þunga. Inga tryggði að þessi uppbygging yrði algjört forgangsmál. Hún hefur sýnt að hægt er að treysta því að Flokkur fólksins standi við stóru orðin þegar á hólminn er komið. Fyrir þá forystu og þrautseigju vil ég þakka henni af öllu hjarta. Við erum loksins að sýna eldri kynslóðinni þá virðingu sem hún á skilið. Við lofuðum aðgerðum; þjóðarátaki og höfum og ætlum að standa við það. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar