Viðskipti innlent

Atli Þór til Al­mannaróms

Atli Ísleifsson skrifar
Atli Þór Jóhannsson.
Atli Þór Jóhannsson. Baldur Kristjánsson

Atli Þór Jóhannsson hefur verið ráðinn til Almannaróms, miðstöð máltækni og gervigreindar, sem sérfræðingur í gervigreind.

Í tilkynningu segir að hann vinni þar að þverfaglegum stefnumótunarverkefnum með áherslu á gervigreind og samfélagsáhrif hennar. 

„Með komu Atla styrkir Almannarómur enn við þekkingu og færni á sviði gervigreindar sem er í takt við útvíkkaða stefnu og starfssvið miðstöðvarinnar.

Atli hefur fjölbreyttan bakgrunn úr nýsköpun, tækni og samfélagsverkefnum en hann starfaði síðast sem tæknistjóri Katla Carbon. Í störfum sínum hefur hann unnið á mörkum nýsköpunar, tækni og samfélagslegra lausna, meðal annars að loftslagslausnum og hringrásarkerfum. Atli er einnig meðstofnandi Samtaka um mannvæna tækni,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×