Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 4. september 2026 07:02 Gervigreind er komin inn í skólastofuna. Spurningin er hvernig við ætlum að kenna nemendum að nota hana þannig að hún efli nám. Umræðan hefur mikið snúist um svindl, verkefni sem gervigreind vinnur fyrir nemendur og reglur um notkun. Stærri og áhugaverðari spurning er þessi; hvernig tryggjum við að nemandi haldi áfram að hugsa sjálfur? Í nýlegir grein benti Bill Gates benti á augljósa þversögn. Sama tækni og getur gert fólki kleift að læra meira en nokkru sinni fyrr getur jafnframt orðið til þess að fólk læri minna. Gervigreind getur útskýrt, leiðbeint, þýtt, tekið saman, reiknað og skrifað nánast samstundis. Tækifærin eru endalaus. Ávinningurinn verður þó mestur þegar tæknin styður við hugsun nemandans í stað þess að vinna hugsunarvinnuna fyrir hann. Það sem skiptir mestu máli er því ekki hversu öflugt verkfærið er heldur hvað nemandinn þarf sjálfur að hugsa, gera og læra. Rétt svar segir bara hálfa söguna Gates vísar til rannsóknar frá 2025 sem sýndu tengsl milli meiri notkunar gervigreindar og minni gagnrýninnar hugsunar og voru tengslin sterkari meðal yngra fólks. Rannsóknin sýnir tengsl en sannar ekki orsakasamhengi. Þetta skiptir máli þegar gervigreind getur framleitt sannfærandi texta, myndir og rangar upplýsingar á augabragði. Nemendur þurfa í auknum mæli að geta spurt; er þetta rétt, hvernig veit ég það, hvaðan koma upplýsingarnar og hvaða gögn styðja málið? Heilbrigður efi er góður. Spurningin um svindl verður næstum of þröng. Miklu áhugaverðara er að spyrja; var nemandinn sjálfur að hugsa? Nemandi getur skilað fallegum texta, vel uppsettu verkefni og réttum svörum án þess að hafa öðlast hæfnina sem verkefninu var ætlað að þjálfa. Við getum því fengið glæsilegt verkefni en minna nám. Með niðurstöðuna 9, B+ eða framúrskarandi. Lærdómurinn í því að reka sig á Ein stærsta áskorunin felst í því hversu auðvelt er orðið að útvista hugsuninni. Gervigreind getur tekið að sér röksemdafærslu, textagerð, hugmyndavinnu, greiningu og jafnvel niðurstöðuna. Börn og ungmenni þurfa hinsvegar að fá að reka sig á. Þau þurfa stundum að gleyma svarinu, reikna vitlaust, skrifa ranga setningu sem virkar ekki, misskilja, velja ranga leið og reyna aftur. Mistök eru hluti af námi. Þegar barn reynir, tekst ekki, endurhugsar, fær hæfilega leiðsögn og finnur síðan lausnina sjálft verður til þekking og færni sem tilbúið svar getur ekki veitt með sama hætti. Þetta skiptir miklu í íslenskum skólum. Við viljum styðja börn og ungmenni og mæta ólíkum þörfum þeirra. Góður stuðningur felst líka í að gefa þeim svigrúm til að glíma við verkefni, gera mistök, leiðrétta sig og upplifa að þau hafi sjálf fundið leiðina áfram. Láttu mig hugsa, hjálpaðu mér svo Þarna liggja jafnframt stærstu tækifæri gervigreindarinnar. Hún getur útskýrt sama hugtak á mismunandi vegu, aðlagað stuðning, búið til æfingar og veitt endurgjöf. Hún getur létt verkefnum af kennurum og skapað meiri tíma fyrir samskipti þeirra við nemendur. Grundvallarmunur er hinsvegar á því að afhenda nemandanum lausn og að leiða hann að henni. Gervigreind getur spurt; hvernig hugsaðir þú, hvar gæti villan verið, hvaða upplýsingar hefurðu og hvaða leið gætirðu prófað næst? Þannig verður tæknin leiðbeinandi fremur en lausnavél Gervigreindin getur gert minna svo nemandinn fái tækifæri til að gera meira. Þegar svörin eru alls staðar verður hugsunin verðmætust. Þess vegna mælum við hæfni einstaklinga, ekki bara getu. Við erum að færast inn í veröld þar sem upplýsingar, útskýringar og tilbúin svör eru nánast óendanleg. Það gerir sjálfstæða hugsun, dómgreind og hæfnina til að meta upplýsingar enn verðmætari. Skólinn þarf því í auknum mæli að rækta hæfni nemenda til að spyrja góðra spurninga, greina villur, bera saman heimildir, rökstyðja niðurstöður, skapa og leysa ný vandamál. Þetta eru jafnframt eiginleikar sem verða sífellt mikilvægari á vinnumarkaði þar sem gervigreind tekur að sér fleiri hefðbundin verkefni. Sama gildir um mannleg samskipti. Gervigreind getur lagað sig að okkur, svarað þegar okkur hentar og verið ávallt til staðar. Mannleg samskipti þjálfa okkur hinsvegar í að hlusta, takast á við ágreining, lesa í aðra og umhverfið, sýna þolinmæði og finna leiðir saman. Sú færni verður áfram grundvallaratriði í menntun barna. Glíman er verðmæt Verkefnið fram undan er því að finna jafnvægið. Gervigreind getur orðið öflugt verkfæri kennara og nemenda þegar hún styður við nám, forvitni og sjálfstæða hugsun. Um leið þurfum við að muna að nám má krefjast fyrirhafnar. Nemandi sem fær að villast fær tækifæri til að læra að rata. Nemandi sem leitar að svarinu lærir leiðina að því. Nemandi sem glímir við að koma hugsun sinni í orð lærir að tjá hana. Spyrjum okkur þess vegna inn í nýju tíma; hvað þurfti nemandinn sjálfur að hugsa, gera, reyna, mistakast og læra? Gervigreindin getur stutt kennarann og hjálpað nemandanum áfram. En hún má ekki taka glímuna frá nemandanum því í glímunni verður námið til. Höfundur er kennari og skólastjórnandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Gervigreind Hjálmar Bogi Hafliðason Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar