Viðskipti innlent

Bláa lónið og Al­freð Gísla­son verð­launuð

Birgir Olgeirsson skrifar
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, tók við Útflutningsverðlaunum forseta Íslands fyrir hönd fyrirtækisins. Alfreð Gíslason hlaut heiðursviðurkenningu fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, tók við Útflutningsverðlaunum forseta Íslands fyrir hönd fyrirtækisins. Alfreð Gíslason hlaut heiðursviðurkenningu fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi. Vilhelm

Bláa Lónið hlýtur Útflutningsverðlaun forseta Íslands 2026 fyrir uppbyggingu alþjóðlegs vörumerkis og verðmætasköpun á sviði ferðaþjónustu, vellíðunar og húðvara. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari fær heiðursviðurkenningu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsstofu sem sér um framkvæmd verðlaunanna. 

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa Lónsins, og Grímur Sæmundsen stjórnarformaður tóku við verðlaununum við athöfn á Bessastöðum í dag.

Bláa Lónið fékk verðlaunin einnig árið 2004 og hlýtur þau því nú öðru sinni, rúmum tveimur áratugum síðar.

Í rökstuðningi úthlutunarnefndar kemur fram að fyrirtækið hafi um árabil verið eitt þekktasta íslenska vörumerkið erlendis og átt þátt í að byggja upp ímynd Íslands sem áfangastaðar.

Fyrirtækið var stofnað árið 1992 og hefur vaxið úr heilsulind við Svartsengi í fyrirtæki sem rekur meðal annars hótel, veitingastaði og heilsutengda þjónustu auk þess að stunda rannsóknir og framleiða húðvörur.

Rekstrartekjur samstæðunnar námu 156,1 milljón evra á síðasta ári og jukust um 36 prósent frá fyrra ári. Tekjurnar voru um 40 milljónir evra árið 2014 og hafa því nær fjórfaldast á rúmum áratug. Hjá fyrirtækinu starfa nú meira en 800 manns af 44 þjóðernum.

Rannsóknir á eiginleikum jarðsjávarins hafa meðal annars skapað grundvöll að þróun húðvara undir vörumerkinu Blue Lagoon Skin Science.

Í rökstuðningnum er einnig fjallað um þær krefjandi aðstæður sem fyrirtækið hefur glímt við vegna jarðhræringa og eldgosa á Reykjanesskaga undanfarin ár. Þrátt fyrir ítrekaðar rýmingar og lokanir hafi fyrirtækið haldið áfram að þróa starfsemina.

Alfreð heiðraður fyrir ferilinn í Þýskalandi

Alfreð Gíslason hlýtur heiðursviðurkenningu verðlaunanna fyrir árangur sinn á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa rutt brautina fyrir íslenska handknattleiksþjálfara erlendis.

Alfreð hóf feril sinn hjá KA en lék síðar með KR, TUSEM Essen í Þýskalandi og Bidasoa á Spáni. Hann var valinn íþróttamaður ársins árið 1989 og var um árabil lykilmaður íslenska landsliðsins.

Eftir að Alfreð stýrði KA til Íslandsmeistaratitils árið 1997 hélt hann til Þýskalands. Hann stýrði Magdeburg til fyrsta Þýskalandsmeistaratitils félagsins og vann þrjá Evróputitla með liðinu.

Síðar stýrði hann Kiel í ellefu ár. Undir stjórn Alfreðs varð liðið sex sinnum Þýskalandsmeistari, vann þýsku bikarkeppnina sex sinnum og Meistaradeild Evrópu tvisvar.

Alfreð hefur stýrt þýska landsliðinu frá árinu 2020. Liðið vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum árið 2024 og hafnaði í öðru sæti á Evrópumótinu fyrr á þessu ári.

Útflutningsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og eru afhent nú í 38. sinn. Embla Medical hlaut verðlaunin í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×