Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Agnar Már Másson skrifar 1. september 2026 00:00 Daniel P. Discroll var ekki sáttur þegar Hegseth varnarmálaráðherra lét starfsmannastjóra hersins taka pokann sinn. Samsett Mynd Daniel P. Driscoll, hermálaráðherra Bandaríkjanna, hefur sagt af sér í kjölfar árekstra við Pete Hegseth varnarmálaráðherra sem hefur látið reka þaulreynda leiðtoga úr Bandaríkjaher síðustu mánuði.
New York Times hefur eftir embættismönnum í Hvíta húsinu að Driscoll hafi látið Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa afsagnarbréf sitt í dag, mánudag. Búist var við afsögn Driscolls eftir að hann hafði ítrekað gagnrýnt Hegseth varnarmálaráðherra fyrir að láta fjölda leiðtoga innan hersins taka pokann sinn. Herinn hefur ekki haft starfsmannastjóra, sem er æðsta yfirmannastaða hersins, frá því að Hegseth rak Randy George starfsmannastjóra án útskýringa í apríl og ekkert bendir til þess að einhver verði í stöðuna von bráðar, að sögn ónafngreindra ráðamanna í umfjöllun NYT. Driscoll er sagður segja af sér á miklum umbrotatímum enda standi herinn frammi fyrir einu annasamasta tímabili sínu frá stríðunum í Írak og Afganistan. Hermenn í loftvarnarsveitum hersins hafa gegnt lykilhlutverki við að verja bandaríska hermenn í Mið-Austurlöndum fyrir írönskum eldflaugaárásum og yfirstjórn Bandaríkjahers í Evrópu veitir Úkraínu mikilvægar upplýsingar og annan stuðning í baráttu þeirra við að halda aftur af stærri herafla Rússa, að því er New York Times greinir frá. Driscoll hitti Trump í eigin persónu til að afhenda uppsögn sína og ræða núverandi stöðu hersins, að sögn eins embættismanns.
Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira