Grótta í Bestu deild kvenna í fyrsta sinn Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2026 17:25 Gróttukonur fögnuðu vel og innilega eftir að hafa tryggt sig upp í Bestu deildina í dag. @grottaknattspyrna Grótta tryggði sér í dag sigur í Lengjudeild kvenna í fótbolta, þó að enn séu tvær umferðir eftir, og leikur því í Bestu deildinni á næsta ári í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs félagsins.
Grótta hefur aðeins tapað tveimur leikjum á leiktíðinni og með því að vinna Selfoss 3-0 á Seltjarnarnesi í dag náði liðið níu stiga forskoti á næsta lið, KR, og ellefu stiga forskoti á liðin í 3. og 4. sæti, HK og Hauka. Þar með er ljóst að ekkert lið getur náð Gróttu að stigum og liðið leikur á meðal þeirra bestu næsta sumar. Maya Camille Neal kom Gróttu yfir á 20. mínútu gegn Selfossi í dag, í mikilli stemningu á Vivaldi-vellinum, og munurinn varð tvö mörk á 60. mínútu þegar Eva Lind Elíasdóttir skoraði óvart sjálfsmark. Shea Collins innsiglaði svo öruggan sigur Gróttu á 86. mínútu og þegar dómarinn flautaði til leiksloka braust út mikill fögnuður en 675 áhorfendur voru mættir á leikinn sem fram fór í miklu blíðviðri. Það skýrist svo í lokaumferðunum tveimur hvaða lið fylgir Gróttu upp en von Selfoss er núna lítil þar sem liðið er í 5. sæti með 26 stig, stigi á eftir HK og Haukum og þremur á eftir KR.
Besta deild kvenna Lengjudeild kvenna Grótta Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira