Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 23:31 Þórhildur Rafns Jónsdóttir fyrrverandi deildarstjóri hjá Reykjavíkurborg og Viktor Orri Þorsteinsson forstöðumaður frístundaheimilisins Vinaheima í Breiðholti. Vísir/Lýður Deildarstjóri sem sagt var upp eftir tæplega tuttugu ára starf hjá Reykjavíkurborg óttast að verkefni hennar verði færð yfir á starfsfólk sem þegar sé störfum hlaðið. Forstöðumaður frístundaheimilis segir þjónustuna geta versnað verði það raunin.
Tæplega níutíu starfsmönnum Reykjavíkurborgar var sagt upp í vikunni og rúmlega þrjátíu þeirra boðið nýtt eða breytt starf. Deildarstjóri sem missti starf sitt á þriðjudag segir óvissu ríkja um hver taki við verkefnum hennar og óttast að aukið álag falli á starfsfólk sem þegar sé störfum hlaðið. „Ég spurði hver talaði við þau, hver myndi sjá um þau, og ég gat ekki fengið svör. Ég fékk þau svör að þau myndu fá upplýsingar síðar,“ segir Þórhildur. Starfsfólkið þegar störfum hlaðið. „Þau eru undir miklu álagi á hverjum degi. Það eru tveir starfsmenn í hverri félagsmiðstöð og ég get ekki séð að þau geti bætt á sig fleiri verkefnum,“ segir hún. Óttast að verkefnin falli á starfsfólkið Sameyki boðaði til félagsfundar í morgun vegna uppsagnanna. Viktor Orri Þorsteinsson forstöðumaður frístundaheimilisins Vinaheima, sem sat fundinn tekur undir áhyggjur Þórhildar og telur hættu á að þjónustan versni ef starfsfólk þurfi að taka við verkefnum þeirra sem sagt var upp. „Við óttumst að nú þegar faglegu deildarstjórarnir eru hættir þá falli verkefni þeirra á okkur. Það eru miklar áhyggjuraddir. Einhvers staðar þurfa þessi verkefni að lenda,“ segir hann. Hann segir óvissuna þegar hafa haft mikil áhrif á starfsfólk. „Starfsfólk hefur átt erfitt með að sofa síðustu nætur því það er mjög hugsi yfir stöðunni.“ Segir uppsögnina hafa verið ómannúðlega Þórhildur, sem hafði gegnt starfi deildarstjóra í tæp tuttugu ár, er ósátt við hvernig staðið var að uppsögn hennar. Hún segir að henni hafi verið boðið á fund með símtali sama dag og henni var sagt upp. „Mér finnst þetta hafa verið ómannúðlegt og óþægilegt í alla staði. Fyrirvarinn var stuttur, ég fékk ekki að vita efni fundarins og ég var ekki hvött til að taka trúnaðarmann með mér.“ Uppsögnin og aðferðin hafi haft mikil áhrif. „Þetta er bara mjög flókið og tekur mikið á,“ segir Þórhildur að lokum.
Reykjavík Vinnumarkaður Sjálfstæðisflokkurinn Félagsmál Börn og uppeldi Rekstur hins opinbera Borgarstjórn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira