Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar 25. ágúst 2026 21:31 Konráð Guðjónsson skrifar grein á vefsíðu Vísis í gær sem svarar minni grein, „Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi“. Þar segir Konráð meðal annars: „Gengið er svo langt að sýna fram á að með verðbólgu aukist hagnaður fyrirtækja sjálfkrafa í beinu hlutfalli ... Niðurstaðan er í einföldu máli öfug: Fyrirtæki græða ekki á verðbólgu heldur er hún frekar til þess fallin að rýra afkomu þeirra.“ Í minni grein er hvergi fullyrt að fyrirtæki almennt græði á verðbólgu, heldur ákveðin fyrirtæki: fasteignafélögin og bankarnir, og því óljóst hverjum hann er að svara með pælingum um fyrirtæki almennt. Hann reynir að sannfæra lesendur um að fasteignafélögin og bankarnir séu ekki að hagnast meira á verðbólgutímabilinu frá 2021 en til dæmis fimm árin þar áður, þegar verðbólga var lág. Hættuleg fullyrðing sem stangast á við staðreyndir Úr grein Konráðs: „Frá því að verðbólga rauk af stað árið 2022 hefur raunávöxtun skráðra félaga verið neikvæð. Ef litið er til fasteignafélaga hafa fjárfestar tapað 11% að raunvirði (leiðrétt fyrir verðbólgu) og tapað 10% í tilfelli fjármálafyrirtækja. Skráð félög eru bara hluti af sögunni en samskonar saga birtist í hagkerfinu í heild sinni ... Væri greining Egils rétt væri þetta allt þveröfugt.“ Þetta er hættuleg fullyrðing, því tölurnar eru til og eru opinberar. Konráð fullyrðir ekki beint um hagnað, því hann veit að það væri ekki rétt, en gefur lesendum til kynna að fasteignafélögin og bankarnir, fyrirtækin sem græða beint af verðbólgu, hafi ekki verið arðbær á tímabilinu frá því að verðbólgan byrjaði, sem var þó reyndar árið 2021, en ekki 2022. Frá árinu 2016 til 2020, þegar verðbólga var að meðaltali 2,4%, þá var ávöxtun eigin fjár bankanna og fasteignafélaganna að meðaltali 7,3%. Á tímabilinu 2021 til 2025 var ávöxtun eigin fjár sömu félaga að meðaltali 12,2%. Heildarhagnaður bankanna og fasteignafélaganna á fyrra tímabilinu, 2016 til 2020, var 245 milljarðar króna. Heildarhagnaður 2021 til 2025 var 532 milljarðar króna, meira en tvisvar sinnum hærri. Ég bara spyr: Hver er að borga Konráði fyrir að halda því fram að 532 milljarðar í hagnað sé minna en 245 milljarðar? Gleymum því ekki að Konráð hefur aðallega sett síðustu mánuði í að sannfæra Íslendinga um að matarkarfan sé ódýr á Íslandi, að þrátt fyrir að landsframleiðsla á mann hafi aukist mun minna en í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum síðustu ár sé Ísland í raun að standa sig betur, og að vextir lækki ekki við inngöngu í Evrópusambandið. Konráð skrifaði skýrslu Áfram Ísland um af hverju Ísland ætti ekki að ganga í Evrópusambandið, en því hefur Gauti B. Eggertsson, prófessor við Brown-háskóla, svarað með 82 blaðsíðna greinagerð sem sýnir 30 dæmi um villandi framsetningu í skýrslu Áfram Ísland. Þá grein má finna hér. Reynt að fela gífurlega hagnaðarvél Ég þori að veðja að þessi mikla vinna sem Konráð hefur lagt í skýrslugerð fyrir Áfram Ísland var ekki gefins, enda er Konráð í vinnu sem ráðgjafi tengdur efnahagsmálum. En því velti ég því fyrir mér af hverju skiptir það hann eða vinnuveitendur hans svona miklu máli að sannfæra Íslendinga um að 532 milljarða króna hagnaður bankanna og fasteignafélaganna síðust fimm ár sé minni en 245 milljarða króna hagnaður þeirra fimm árin áður. Mér finnst ekki klókt hjá Konráði að svara greininni minni, því hvernig getur hann gert það augljósara að þeir sem borga hans laun vilja ekki að almenningur geri sér grein fyrir því að verðbólgan (og háir vextir) er gífurleg hagnaðarvél fyrir þessi fyrirtæki (ekki öll, aðeins þau sem ég tilgreindi) og þá sem eiga skuldabréf og aðrar eignir sem fá vexti og verðbætur af skuldendum landsins. Ég ætla að svara stuttlega öðru sem Konráð sagði í sinni grein: (1) Ég fullyrti hvergi að „hlutur launafólks í verðmætasköpun hagkerfisins væri lítill“. Ég bara tjáði mig bara ekkert um það, og raunar efa ég að 50 milljarða árlegur hagnaður sem verður til út af verðbólgunni hjá þessum félögum sé nóg til að breyta hlut launafólks í hagkerfinu. Það er 1% af þjóðarframleiðslu, sem er mikið en er ólíklegt til að hafa þau áhrif. (2) Þjóðarframleiðsla á mann hefur hækkað mun minna á Íslandi en í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum síðustu ár. Það passar ekki vel við hans söguskýringu en hann er samt sammála því, enda segir hann að „Þar er farið yfir hagvöxt á mann og réttilega er bent á að hann hafi verið lítill.“ Það að tala sig í kringum að lélegur hagvöxtur sé samt bara í lagi er ekki trúverðugt. (3) Ég sagði hvergi að hagnaður af verðbólgu væri eilífðarvél. Þar er einfaldlega verið að snúa út úr. (4) Ávöxtun lífeyrissjóðanna var ekki hærri en þeirra sjóða sem ég bar þá saman við, sem voru stórir sjóðir í Bandaríkjunum og Evrópu og raunar þeir sjóðir sem lífeyrissjóðirnir setja sína erlendu fjárfestingu oft í. Það var samanburðurinn, en ekki það sem Konráð bar saman við. Hugmyndin var einföld: Af hverju erum við að borga svona mikla vexti, og aðallega til lífeyrissjóðanna, ef þeir eru ekki að ná hærri ávöxtun en þeir sjóðir sem þeir setja sjálfir peninga í erlendis. Því var að engu leyti svarað. Konráð var ekki að sýna mikla nákvæmni hér. Svo til að loka þessu: Reitir gáfu út uppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2026 núna á mánudaginn (24. ágúst), en þar uppfærðu þeir horfur um hagnað á árinu aðallega út af „verðlagshækkun“. Með öðrum orðum, vegna þess að verðbólga er orðin meiri en síðast þegar þeir gáfu út þessa spá, hafa þeir hækkað afkomuspá sína. Hér má sjá glæruna úr þeirra fjárfestakynningu: Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Efnahagsmál Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir F. J. skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun