Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Árni Sæberg skrifar 25. ágúst 2026 16:09 Slórfell var síðasti fjarskiptastaður Mílu sem var rekinn með svokallaðri síkeyrslu. Míla Míla hefur lokið mikilvægu skrefi í orkuskiptum fjarskiptainnviða landsins með uppsetningu rafgeymakerfis, sólarsella og vindmyllu á fjarskiptastaðnum Slórfelli á Möðrudalsöræfum. Slórfell var síðasti fjarskiptastaður fyrirtækisins þar sem dísilrafstöð hafði verið í samfelldum rekstri allan sólarhringinn, svokölluð síkeyrsla. Með nýju orkukerfi hefur tekist að draga verulega úr olíunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Mílu segir að Slórfell hafi um árabil gegnt lykilhlutverki í fjarskiptum á norðanverðu miðhálendinu. Þar séu meðal annars rekin örbylgjusambönd, farsímasendar og Tetra-kerfi Neyðarlínunnar. Þar sem staðurinn er utan almenns raforkukerfis hafi dísilrafstöð verið í gangi allan sólarhringinn, allt árið um kring, til að tryggja órofið fjarskiptasamband á svæðinu. Haustið 2025 hafi verið ákveðið að ráðast í aðgerðir til að minnka umhverfisáhrif rekstursins. Í samstarfi við Bláorku hafi verið mótuð lausn í tveimur áföngum. Í fyrri áfanga 60 kWh lithium-rafgeymakerfi verið sett upp, sem gerir rafstöðinni kleift að keyra í styttri lotum með meiri afköstum og hlaða rafgeymana á meðan. Í kjölfarið hafi rafstöðin að jafnaði aðeins þurft að ganga um sjö klukkustundir á sólarhring í stað þess að vera í stöðugum rekstri. Í síðari áfanga verkefnisins 24 sólarsellur, sem geta skilað allt að 11 kW við bestu aðstæður, verið settar upp auk 800 W vindmyllu. Með þessu nýti Míla þá endurnýjanlegu orku sem aðstæður á staðnum bjóða upp á, bæði sól og vind. Dísilrafstöðin verði áfram hluti af kerfinu og fari sjálfkrafa í gang ef þörf krefur til að tryggja rekstraröryggi. Áætlað sé að notkun á dísilolíu fari úr 12 þúsund lítrum á ári í um 6 þúsund lítra, sem sé töluverð kostnaðarlækkun. „Framkvæmdin á Slórfelli markar tímamót í orkuskiptum Mílu. Með henni hefur fyrirtækið lokið endurnýjun orkukerfa á öllum fjarskiptastöðvum sem áður reiddu sig alfarið á síkeyrslu. Þetta er jafnframt liður í áherslu Mílu á ábyrgan og öruggan rekstur fjarskiptainnviða þar sem unnið er markvisst að því að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar. Verkefnið sýnir hvernig hægt er að nýta blandaðar orkulausnir til að auka sjálfbærni á afskekktum fjarskiptastöðum án þess að gefa eftir í rekstraröryggi.“
Orkuskipti Loftslagsmál Fjarskipti Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Fleiri fréttir Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Sjá meira