Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar 25. ágúst 2026 07:41 Síðustu vikur hefur umræða um efnahagsmál í samhengi við atkvæðagreiðsluna um ESB verið upp og ofan. Margir hafa lagt fram gagnlegar upplýsingar og sjónarmið sem bæði styðja við já og nei við ESB. Slíkt er bráðnauðsynlegt lýðræðislegri umræðu. Síðan hefur komið fram efni sem er minna gagnlegt og byggir jafnvel ekki á hagfræðilegum stoðum og er einungis til þess fallið að rugla mikilvæga umræðu. Í tvígang hefur slíkt efni birst í nafni Egils Almars Ágústssonar og í báðum tilfellum virðast boðaðar töfralausnir og eilífðarvélar. Vextir greiddir til himna Fyrst ber að nefna útreikninga á síðunni ríkissjóður punktur is. Þar eru reiknaðir einhverskonar umframvextir sem Íslendingar hafa greitt síðustu ár og fundið meðal annars út að hægt hefði verið að byggja 30 nýja Landspítala ef vextir hér hefðu verið í takt við meginlandið. Ekki nema. Eina leiðin hins vegar til að komast að svo miklum vaxtasparnaði er að gera ráð fyrir því að vextirnir séu greiddir til útlanda, eða til himna. Sannleikurinn er hins vegar sá að einhver fær vextina og sú upphæð lækkar í beinu hlutfalli við vaxtagjöldin. Hreinar vaxtagreiðslur þjóðarbúsins eru um og undir 50 milljarðar króna á ári – ríkissjóður punktur is gerir ráð fyrir að hægt sé að spara 250 milljarða sem segir allt um hversu óraunhæft matið er. Að því sögðu er vaxtastig óþolandi hátt á Íslandi og hefur ýmsar óæskilegar afleiðingar en ef það lækkar myndast ekki risastór svigrúm til að stórauka umsvif í hagkerfinu með 250 milljarða framkvæmdum. Það er óábyrgt að bera slíkt á borð fyrir almenning. Meira um þetta hér. Öllu snúið á hvolf um veruleika fyrirtækja í verðbólguheimi Um daginn fór síðan ný vefsíða í loftið – verðtrygging punktur is. Stöldrum aðeins við það sem kemur fram þar og í grein Egils um að verðbólga sé stærsta uppspretta hagnaðar íslenskra fyrirtækja. Gengið er svo langt að sýna fram á að með verðbólgu aukist hagnaður fyrirtækja sjálfkrafa í beinu hlutfalli. Forsenda útreikninganna er að svo lengi sem eignir séu verðtryggðar í meira mæli en skuldir myndist hagnaður. Sé það rétt er til nokkurskonar eilífðarvél fyrir hagnað fyrirtækja af verðbólgu. Það sem gleymist er að þegar verðbólga eykst þá hækka vextir á óverðtryggðum skuldum og gjarna enn meira en sem nemur verðbólgu. Rekstrarkostnaður hækkar einnig. Ef tekið er tillit til þessara þátta þá rýrir verðbólga arðsemi. Niðurstaðan er í einföldu máli öfug: Fyrirtæki græða ekki á verðbólgu heldur er hún frekar til þess fallin að rýra afkomu þeirra. Hvernig hefur arðsemin verið í hárri verðbólgu? Það er einnig hægt að taka eitt skref til baka og skoða tvennt: Hvernig eru fyrirtæki verðmetin? Hvernig er arðsemi þeirra og er eitthvað sem bendir til þess að fyrirtæki hafi í reynd hagnast á verðbólgu síðustu ára? Verðmat fyrirtækja er flókið viðfangsefni þar sem huga þarf að mörgum breytum. Án þess að hafa miklar orðalengingar um það þá er fátt, ef nokkuð, sem hefur jafn neikvæð áhrif á verðmat fyrirtækja og háir vextir, sem eru yfirleitt fylgifiskur mikillar verðbólgu. Það kristallast síðan í raunverulegri arðsemi fyrirtækja á Íslandi. Frá því að verðbólga rauk af stað árið 2022 hefur raunávöxtun skráðra félaga verið neikvæð. Ef litið er til fasteignafélaga hafa fjárfestar tapað 11% að raunvirði (leiðrétt fyrir verðbólgu) og tapað 10% í tilfelli fjármálafyrirtækja. Skráð félög eru bara hluti af sögunni en samskonar saga birtist í hagkerfinu í heild sinni. Raunarðsemi fyrirtækja var óvenju lítil 2023 og 2024 á sama tíma og verðbólga var mjög mikil. Árið 2022 var skárra (4%) en þó langt undir. Væri greining Egils rétt væri þetta allt þveröfugt. Hlutur launafólks í verðmætasköpun óvíða hærri og jöfnuður fremur mikill Ef greining Egils væri rétt mætti jafnframt gera ráð fyrir því að hlutur launafólks í verðmætasköpun hagkerfisins væri lítill. Staðan er þveröfug. Í aðeins einu ESB ríki (Þýskalandi) hefur hlutur launa í verðmætasköpun verið hærri. Loks mætti ætla að ef greiningin væri rétt myndi ríkja mikill ójöfnuður hér á landi. Aftur sýna gögn málsins hið gagnstæða eins og bent var á í sérfræðingaskýrslunni um gjaldmiðlamál sem unnin var fyrir fjármála- og efnahagsráðherra og sjá má í skjáskoti hér að neðan. Gögn Hagstofunnar úr tekjuskattsgögnum benda ekki til þess að ójöfnuður hafi aukist sérstaklega síðustu ár, sem aftur gengur í berhögg við niðurstöður Egils. Hefur okkur gengið verr en ESB síðasta áratug? Nei Að lokum rétt að skoða nánar þann hluta greinarinnar sem fjallar um þróun efnahagsmála síðasta áratug. Þar er farið yfir hagvöxt á mann og réttilega er bent á að hann hafi verið lítill. Vandinn er þó sá að það er ályktað út frá þeirri staðreynd án þess að skoða samhengi hlutanna. Það sem hefur gerst síðasta áratug er að vinnutími hefur styst mikið á Íslandi og miklu hraðar en í öðrum Evrópulöndum. Á sama tíma hefur framleiðni, landsframleiðsla á vinnustund vaxið hraðar hér á landi. Íslendingar hafa þannig nýtt aukna verðmætasköpun til þess að vinna minna og hafa meiri tíma fyrir sig og sína. Það er sérstakt að líta á það með svo neikvæðum augum. Nánar má lesa um þróun framleiðni hér. Það er líka gagnlegt og sanngjarnt að skoða þróun framleiðni einstakra EES ríkja síðasta áratug. Fyrir utan gömul austantjaldsríki, sem vaxa eðli máls samkvæmt miklu hraðar frá lægri grunni, hefur framleiðni einungis aukist lítillega hraðar í Danmörku og á Írlandi síðasta áratug. Það hefur þrátt fyrir allt gengið betur hjá okkur en flestum okkar samanburðarþjóðum hvað framleiðni varðar. Það sem skiptir máli Þrátt fyrir allt framangreint er rétt að nefna að mikil verðbólga síðustu ár samhliða háu vaxtastigi er ólíðandi fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Slíkt veldur sannarlega ýmsum kostnaði og getur leitt til þess að byrðarnar lendi með ójöfnum hætti á fólki og fyrirtækjum. Sérstaklega er áhyggjuefni að hagvöxtur allra síðustu misseri hefur verið afar veikur, sem er bæði til þess fallið að setja þrýsting á afkomu fyrirtækja og fjárhag heimilanna. Það er skiljanlegt að velta öðrum lausnum fyrir sér í slíku umhverfi en sannleikurinn er sá að það er sama hvaða gjaldmiðil við ætlum að nota þá þurfum við sjálf að koma þessum málum í lag. Það eru engar eilífðarvélar eða töfralausnir í boði. Höfundur er hagfræðingur og ráðgjafi hjá Kontext ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Konráð S. Guðjónsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun