Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 22:30 Ég fæ reglulega skammir fyrir að vera „orðljót.“ Held að orðið „píkuveldi“ sé það sem fer fyrir flestra brjóst. Mér finnst reyndar dálítið spaugilegt að í landi þar sem hálf þjóðin flykkist árlega í skrúðgöngur undir regnboga- og transfánum skuli fólk ekki þola að heyra eða sjá orðið „píka.” Ekki eru nema rúm fjörutíu ár síðan íslenskar orðabækur skilgreindu fyrsta merkingarlið orðsins „píka“ sem „stúlka, vinnustúlka“ — og sérstaklega var tekið fram að orðið væri „oft notað í spaugi.” Á meðan Morgunblaðið, elsti og íhaldssamasti fjölmiðill landsins, birti þessa mynd undir fyrirsögninni: „Stuð og stemning í Gleðigöngunni” þykir orðið „píka” vera svo gróft að margir fá fyrir brjóstið. Eða einhvern annan líkamshluta… Ég hef einnig fengið löðrunga á handarbakið fyrir að vekja athygli á dæmum (ekki nafngreindum, engin ástæða til þess) sem sýna hve margir eru illa skrifandi á okkar ástkæra, ylhýra máli. Það er ekki aðeins vegna þess að ég er gömul nöldurskjóða að ég hef tekið eftir því að ótrúlegur fjöldi fólks getur varla stafað sig fram úr einföldustu setningum. Þetta er áfellisdómur yfir íslenska menntakerfinu — sem er auðvitað yfirgnæfandi kvenmannað. Og þar með höfum við tekið U-beygju beint aftur inn í íslenska píkuveldið, þar sem konur eru 80–85% kennara í grunnskólum (og hlutfallið nálgast 94% í leikskólum) og yfir 90% nemenda í kennaranámi við Háskóla Íslands eru konur. Ég læt ekki segja mér hvað ég má og má ekki segja. Mér finnst orðið píka ekki vera ljótt orð og enginn segir mér að ég megi ekki kalla Ísland „píkuveldi” (þó það – að Íslandi sé stjórnað af kvenfólki – sé í sjálfu sér dapurleg staðreynd sem hefur stefnt þjóðinni í voða). En það sem mikilvægara er – við verðum að varðveita tungumálið okkar, íslenskuna, okkar dýrmæta sameiginlega arf. Þeir sem fylgjast með þróun málsins hljóta að hafa tekið eftir hvernig vókismi hefur smogið eins og eitraður snákur inn í málið. Alls kyns sýndaryrði og skrípyrði hafa ratað inn í íslenskar orðabækur undanfarna áratugi. Þetta skiptir máli. Íslenskan er ekki eitthvert óþrjótandi heimstungumál sem láta má reka stjórnlaust fyrir straumi. Hún er móðurmál örfárra hundruð þúsunda manna. Samt hefur hún varðveist með svo undraverðum hætti að við getum enn, nærri átta öldum síðar, lesið texta Snorra Sturlusonar og skilið tungumál forfeðra okkar. Fáar þjóðir eiga slíkan menningararf. Tungumálið er ekki bara tæki til að panta pítsu eða skrifa færslu á Facebook eða Instagram. Í því geymist saga okkar, hugsunarháttur, sjálfsmynd, skopskyn, ljóð, lög og sögur þjóðarinnar. Ef íslenskan verður fátækari, ónákvæmari og sífellt háðari ensku glötum við ekki aðeins orðum. Við slítum þræði sem legið hafa órofnir milli kynslóða í nærri þúsund ár. Mér finnst stórkostlegt að hugsa til þess að geta enn lesið orð sem Snorri Sturluson skrifaði á þrettándu öld. Snorri er einn forfeðra minna — eins og ótal annarra Íslendinga — en það merkilegasta er ekki blóðskyldleikinn. Það er málskyldleikinn. Átta hundruð ár skilja okkur að, en íslenskan tengir okkur enn saman. Vonandi fyrirgefur Jónas Hallgrímsson mér fyrir að fá lánaða fyrstu línuna (leirburðurinn skrifast alfarið á undirritaða): Ástkæra, ylhýra málið,sem margar aldir geymaorð okkar feðra og mæðraí minningunum lifa. Ég heyri í Snorra afaúr átta alda fjarska:„Fjársjóð málsinsver þú hann um aldir ókomnar.“ Höfundur er fjölmiðlafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar