30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar 24. ágúst 2026 10:21 Hér tek ég saman helstu niðurstöður rannsóknarskýrslu sem ég birti á heimasíðu minni www.gautiesb.is í dag [7]. Rannsóknin skjalfestir 30 villandi framsetningar sem Áfram Ísland kynnir sem staðreyndir í efnahagsgreiningu á heimasíðu sinni. Framsetning greiningarinnar ýkir í nánast öllum atriðum velsæld Íslands. Til þess er engin ástæða. Staða Íslands er góð, rétt eins og staða margra ESB-ríkja. Hér fer ég yfir tíu sýnidæmi, þar á meðal grófasta dæmið, bæði í máli og myndum. Eðlilegt væri að samtökin drægju skýrsluna til baka. „Við erum í meistaradeild. Evrópusambandið í núverandi formi er í besta falli að keppa um miðja aðra deild,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson á upphafsfundi Áfram Íslands 6. júlí [1]. Tveimur dögum síðar birtist 40 síðna efnahagsgreining þar sem niðurstöðurnar voru kynntar sem staðreyndir [2]. Niðurstaðan var afdráttarlaus: lífskjör og efnahagsmál standa „mun sterkari fótum“ á Íslandi en almennt gerist í ESB [2]. Um aldamótin 1900 var Ísland ein fátækasta þjóð Vestur-Evrópu. Í dag erum við í hópi hinna auðugustu. Þetta afrek þarf ekki að ýkja. Ýkjur og sjálfshól blinda okkur fyrir tækifærunum. Verðlag er hér 61-72% hærra en í ESB. Raunvextir eru hér 4,5-5,5% en um 0,8% á evrusvæðinu. Í þessum mun felast tækifærin. Aðeins tvö augljós dæmi tíndi ég til í grein hér á Vísi [3] og lofaði að fjalla um fleiri [5]. Við það er hér með staðið. Allir tölvukóðar, gagnagrunnar og útreikningar eru almenningi opnir á www.gautiesb.is [7]. Kakan og sneiðarnar (nr. 1) Áfram Ísland segir hagvöxt síðustu tíu ára hafa verið meiri á Íslandi en í ESB [2]. Undirtónninn er sá að með aðild gengi Ísland til liðs við 27 ríki í stöðnun. Lífskjör ráðast ekki af heildarhagvexti heldur af hagvexti á mann. Á sama tíma hefur erlent vinnuafl streymt til landsins. Í tölum Áfram Íslands gleymdist að deila með fólksfjölda. Sé það gert kemur í ljós að hagvöxtur á mann var meiri í ESB en á Íslandi (mynd 1). Í samanburði við ESB-ríkin 27 hrapar Ísland úr 10. í 23. sæti [7]. Mynd 1. Kakan stækkaði hraðar á Íslandi, en sneið hvers og eins stækkaði mun hægar en að meðaltali í ESB: um 0,9% á ári á móti 1,4%. (a) Vöxtur hagkerfisins í heild, mælikvarði skýrslunnar; Ísland í 10. sæti. (b) Vöxturinn á hvern íbúa; Ísland í 23. sæti af 28. Tölum frá Írlandi og Lúxemborg verður að taka með nokkrum fyrirvara vegna þess að erlend fyrirtæki hafa þar heimilisfesti af skattalegum ástæðum. Heimild: [7]. Dýrasta landið gert „ódýrt“ (nr. 2) Á Íslandi er verðlag 61–72% hærra en að meðaltali í ESB (mynd 2(b)). Það rímar ekki við söguþráðinn. Því er brugðið á það ráð að endurskilgreina hvað „verðlag“ merkir. Í greiningunni segir að „verðlag sé hér fremur lágt eða jafnvel lægst í öllum vöruflokkum“ og að það sé 28% lægra en í ESB-ríkjunum [2]. Rökin eru „að tekjur séu hér hærri en gengur og gerist í álfunni“. Mælikvarði Áfram Íslands á verðlag er hlutfallslegt verðlag landsins deilt með hlutfallslegum tekjum. Mynd 2(a) sýnir niðurstöðuna: Lúxemborg og Ísland eru „ódýrustu“ lönd álfunnar en Grikkland, Ungverjaland og Slóvakía þau „dýrustu“. Þessi mælikvarði á sér enga fræðilega réttlætingu [8]. Samband verðlags og launa hefur verið rannsakað í hagfræði í meira en hálfa öld, bæði í líkönum og gögnum [8]. Mat á gögnum skýrslunnar sjálfrar bendir til að verðlag hækki um 0,42% fyrir hvert prósent sem laun hækka, í samræmi við fyrri rannsóknir. Að teknu tilliti til launa er verðlag á Íslandi 24–31% hærra en matið spáir fyrir um. Frávikið er stærra en í nokkru ESB-ríki [8]. Mynd 2. (a) Kvarði skýrslunnar, verð deilt með tekjum, sem gerir Ísland „ódýrt“ og Lúxemborg „ódýrast“. (b) Verðið sjálft; Ísland er dýrast allra. Heimild: [7]. Um miðja deild í skuldsetningu, ekki á toppnum (nr. 3) Ein áberandi mynd skýrslunnar og formálinn bera skuldsetningu íslenska ríkisins saman við ESB-heildina, 56% á móti 84%, undir fyrirsögninni „Opinber fjármál standa betur á Íslandi en almennt í ESB“. Þá heildartölu toga stóru, skuldsettu ríkin upp. Sé grannt skoðað má þó finna yfirlitstöflu um nokkrar hagstærðir þar sem skuldir allra ríkjanna eru birtar, en ríkjunum er þar ekki raðað eftir skuldum, svo hvergi sést hvar Ísland stendur í röðinni. Sé ríkjunum einfaldlega raðað upp, eins og í deildarkeppni, er Ísland um miðja deild: í 14. sæti af 28 [7]. Vaxtamunurinn kostar heimilin mikið (nr. 4) Skýrsla Áfram Íslands afgreiðir háa vexti hér á landi sem fylgifisk verðbólgu, verðbólguvæntinga og framleiðsluspennu: „Vandinn liggur í verðbólgunni“ [2]. Hvergi í skýrslunni er þó minnst á raunvexti, sem mæla raunverulegan vaxtakostnað að teknu tilliti til verðbólgu. Vaxtamunurinn milli Íslands og evrusvæðisins hverfur ekki þótt fullt tillit sé tekið til verðbólgu: raunvextir nýrra íbúðalána eru 4,5–5,5% á Íslandi en um 0,8% á evrusvæðinu [7, 10]. Mynd 3 sýnir einfalt skýringardæmi á verðlagi 2026 um afleiðingar vaxtamunar af þessari stærðargráðu fyrir íslenska fjölskyldu sem kaupir sína fyrstu íbúð með 60 milljóna króna jafngreiðsluláni til 25 ára [7]. Eins og myndin sýnir hækkar mánaðargreiðslan um 51%, úr 220 í 333 þúsund krónur, þegar farið er frá vaxtakjörum evrusvæðisins yfir í krónukjör. Sé farið í hina áttina, úr krónukjörum í evrukjör, eykst eignamyndun af fyrstu greiðslunni um 68%, úr 108 í 181 þúsund krónur. Krónukjörin þýða því ekki aðeins að mánaðarleg útgjöld verða umtalsvert hærri heldur líka að töluvert minni hluti þeirra fer í að eignast húsið sem lánið var tekið til að kaupa. Stærstur hluti greiðslunnar rennur til bankans sem vextir í stað þess að lækka höfuðstólinn. Mynd 3. Mánaðargreiðslan af sama 60 milljóna króna láni er 333 þúsund krónur við 4,5% raunvexti á krónukjörum en 220 þúsund krónur við 0,8% raunvexti á evrukjörum. Rauði hlutinn sýnir vaxtakostnað en sá græni lækkun höfuðstóls. Heimild: [7, 10]. Framleiðnin um miðja deild (nr. 5) Skýrslan segir að framleiðni vaxi mun hraðar á Íslandi en í ESB, en sýnir aðeins tvö meðaltöl og enga röðun [2]. Framleiðnivöxtur á vinnustund síðustu tíu ára er +11,6% á Íslandi. Sé ríkjunum 28 raðað upp, eins og í deildarkeppni, er Ísland um miðja deild, í 14. sæti [7]. Sama gildir þegar mælt er frá aldamótum. Tveimur meðaltölum var stillt upp; stigataflan segir aðra sögu. Tíu sýnidæmi, sama áttin Mynd 4 dregur sýnidæmin tíu saman. Í grein minni [7] er farið í saumana á hverju þeirra og einnig á 20 öðrum dæmum um villandi framsetningu sem ég hef fundið til þessa. Mynd 4. Tíu dæmi um misfærslur í skýrslu Áfram Íslands. Fyrri hlutinn sýnir dæmi 1–5 og sá síðari dæmi 6–10. Dæmi 1–9 eru rakin í greininni í sömu röð en grófasta villan, dæmi 10, er rakin sérstaklega. Heimildir: [7]–[10]. Fjögur dæmi til viðbótar (nr. 6 til 9 á mynd 4) eru af sama toga. Kaupmáttarvöxtur er sagður +68% frá 2013 á móti +8% í ESB, „sama á hvaða mælikvarða er litið“ [2]. Upphafsárið 2013 er öldudalur eftir hrun; sé mælt frá 2007 á hefðbundnum kvörðum er vöxturinn +3% á móti +15% í ESB [7]. Helsta tromp skýrslunnar er að launakostnaður á vinnustund á Íslandi, mældur í evrum, sé sá næsthæsti í Evrópu [2]. Sú tala er rétt. En þegar tekið er tillit til þess að laununum er varið á Íslandi, þar sem verðlag er hærra en í nokkru ESB-ríki, kemur í ljós ein af mest sláandi niðurstöðum samanburðarins, niðurstaða sem þó er hvergi nefnd í skýrslunni. Vinnustund í ESB kostar fyrirtæki að jafnaði mun færri evrur en vinnustund á Íslandi. En launakostnaðinum er varið heima fyrir, á verðlagi hvors um sig, og þá snýst dæmið við: íslenski launakostnaðurinn kaupir hér örlítið minna af vöru og þjónustu en sá evrópski kaupir þar. Sé litið til einstakra ríkja er Ísland í 9. sæti af 28 að teknu tilliti til kaupgetu, þótt fyrirtæki hér greiði næstmest fyrir hverja unna stund [7]. Einkaneysla á mann er sögð „nr. 2 í ESB“, reiknuð með verðvísi framleiðslunnar (fisks og áls); með verðvísi neyslunnar, sem Eurostat mælir með, er Ísland í 4. sæti [7]. Og krónan er sögð álíka stöðug og evran gagnvart Bandaríkjadal, en samkvæmt tölum skýrslunnar sjálfrar flöktir krónan meira á hverju hinna níu ára eftir losun hafta [7]. Skýrslan birti sjálf mynd sem sýndi að launin féllu niður að meðaltali ESB þegar leiðrétt var fyrir verðlagi. Í stað þess að fjalla efnislega um niðurstöðuna kallaði skýrslan hana „ákveðið ósamræmi í hagtölum“ og lagði hana til hliðar [2]. Skýrslan segir meðal annars að niðurstaðan stangist á við „mælingar OECD“. Höfundur greiningarinnar vísar oft í þessa tölu. Nú víkur sögunni að OECD. Grófasta villan: talan sem stakk í stúf (nr. 10) Grófasta misfærslan af þeim þrjátíu sem hér eru raktar snýst um tölu sem er hvergi prentuð í skýrslunni sjálfri. Hún kemur þó rækilega við sögu, því hún varð burðarás þeirrar varnar að Ísland væri í sérstakri meistaradeild en ríki ESB væru vart um miðja næstu deild. Þegar á móti blés í ritdeilu við höfund þessarar greinar var þessi OECD-tala hrist fram úr erminni. Samkvæmt henni er kaupmáttur launa hvergi meiri en á Íslandi, og ekki bara í Evrópu, heldur meðal allra þróaðra ríkja í heiminum sem eru í OECD [4, 6]. Talan er röng. Átta aðrar sannreynanlegar mælingar, byggðar á opinberum gögnum frá Eurostat, framkvæmdastjórn ESB, Alþjóðabankanum, ILO og OECD sjálfu, setja Ísland í 7. til 12. sæti, eins og mynd 5 sýnir. Aðeins þessi eina tafla OECD setur Ísland í 1. sæti. Flestir hagfræðingar sem sjá tölu sem er svo langt frá öllum öðrum mælingum gera hana ekki að aðalatriði, heldur spyrja sjálfa sig hvers vegna hún stingur svo út. Það er ekki erfitt að athuga, því allar þessar mælingar byggjast í grundvallaratriðum á sömu frumgögnum frá Hagstofu Íslands. Svarið er tvíþætt. Í fyrsta lagi er íslenska færslan í töflu OECD reiknuð úr heildarlaunakostnaði fyrirtækja, með lífeyrisiðgjöldum launagreiðenda og tryggingagjaldi, en ekki úr launum eins og færslur evrópsku samanburðarríkjanna. Það hækkar teljarann um fjórðung, og OECD skjalfestir sjálft að þessi undantekning gildi í Evrópu aðeins um Ísland. Í öðru lagi er deilt með of fáu fólki: fjöldi launafólks í gögnum OECD er framreiknaður frá árinu 2015, svo hinn mikli fjöldi innflytjenda sem hingað hefur flust síðan er ekki talinn með. Fjöldi launafólks er í dag um 22% meiri en sá fjöldi sem OECD miðar við; þegar miðað er við of lágan fjölda verða „meðallaunin“ of há. Ef aðeins teljarinn er leiðréttur fellur Ísland úr 1. í 4. sæti. Sé íslenska færslan reiknuð eins og færslur hinna landanna fellur Ísland í 14. sæti af 37 [9]. Landið er því ekki í sérflokki: hinar átta mælingarnar setja það í 7.–12. sæti en leiðrétta OECD-mælingin í 14. sæti af 37. Mynd 5. Níu mælingar á launum Íslendinga, byggðar á sömu íslensku frumgögnunum. Aðeins efsta talan, sem vísað var til í ritdeilunni, setur Ísland í 1. sæti; hinar átta setja það í 7.–12. sæti. Heimild: [9]. Áfram Ísland á að draga skýrsluna til baka, hætta að nota niðurstöður hennar og birta opinbera leiðréttingu. Það væri samtökunum til sóma að biðja kjósendur jafnframt afsökunar; kjósendur eiga að geta treyst því að upplýsingar sem kynntar eru sem staðreyndir séu réttar. Efnahagslegur árangur Íslands í rúma öld er raunverulegur og ekki þarf að ýkja hann. Ísland getur spilað í meistaradeild Evrópu, þar sem nágrannaþjóðir okkar spila. Íslendingar geta borið höfuðið hátt sem þjóð meðal þjóða, fremur en að láta lítið fyrir sér fara líkt og margir virðast mæla með í víðsjárverðum heimi. Kosningin 29. ágúst snýst um hvort halda eigi viðræðunum við ESB áfram svo unnt verði að kanna hvaða samningur stendur til boða og hvaða tækifæri af honum leiða, áður en samningurinn verður lagður í dóm þjóðarinnar. Þjóðin mun þá samþykkja hann eða hafna honum. Sú ákvörðun á að byggjast á réttum upplýsingum. Höfundur er prófessor í hagfræði við Brown-háskóla. Greinin, gögnin og tölvukóðinn að baki hverri tölu eru opin á www.gautiesb.is. Heimildir [1] Viðskiptablaðið (2026). „Ísland í meistaradeild en ESB í miðri annarri deild“, 6. júlí 2026. https://vb.is/frettir/island-i-meistaradeild-en-esb-i-midri-annarri-deild/. Sjá einnig mbl.is (2026), „ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild“, 6. júlí 2026. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/07/06/esb_i_besta_falli_ad_keppa_i_midri_annarri_deild/. [2] Kontext ehf. (2026). Ísland og ESB: samanburður lífskjara og hagstærða. Skýrsla unnin fyrir Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) og Áfram Ísland, birt 8. júlí 2026. https://aframisland.is/greining. [3] Eggertsson, G. B. (2026). „Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United“. Vísir, 26. júlí 2026. https://www.visir.is/g/20262913683d/er-is-land-manchester-city-og-esb-sheffield-united. [4] Guðjónsson, K. S. (2026). „Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað“. Vísir, 28. júlí 2026. https://www.visir.is/g/20262914650d/afvegaleidingum-og-rangfaerslum-gauta-svarad. [5] Eggertsson, G. B. (2026). „Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar“. Vísir, 31. júlí 2026. https://www.visir.is/g/20262915631d/stor-ord-litil-rok-og-ekkert-daemi-um-ranga-tolu-svar-til-konrads-s.-gudjonssonar. [6] Guðjónsson, K. S. (2026). „Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið“. Vísir, 3. ágúst 2026. https://www.visir.is/g/20262916521d/rangfaerslurnar-standa-enn-og-ekkert-ad-theim-vikid. [7] Eggertsson, G. B. (2026). Ísland er í efstu deild Evrópu ásamt fremstu ríkjum ESB: Mat á fullyrðingu Áfram Íslands. Ágúst 2026. Greinin, öll gögnin og tölvukóðinn eru aðgengileg á www.gautiesb.is. [8] Eggertsson, G. B. (2026). Ísland er dýrara en öll ríki ESB, líka að teknu tilliti til launa. Ágúst 2026. Grein, gögn og kóði á www.gautiesb.is. [9] Eggertsson, G. B. (2026). „Níu samanburðir. Aðeins ein tafla setur Ísland í fyrsta sæti: staðreyndaskoðun á OECD-launatölunni“. 18. ágúst 2026. www.gautiesb.is. [10] Eggertsson, G. B. (2026). Drög að mati á lækkun vaxtakostnaðar íslenskra heimila við upptöku evru. 19. júní 2026. Grein, gögn og kóði á www.gautiesb.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gauti B. Eggertsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun