Íslenski boltinn

BBC birtir inn­slag um sögu­legt ein­vígi KR og Liver­pool

Aron Guðmundsson skrifar
BBC fylgdi eftir liði KR í aðdraganda leiks liðsins gegn LIverpool hér heima í Evrópukeppni gegn enska stórliðinu Liverpool. Meðal annars var rætt við Albert Guðmundsson og Ellert B Schram
BBC fylgdi eftir liði KR í aðdraganda leiks liðsins gegn LIverpool hér heima í Evrópukeppni gegn enska stórliðinu Liverpool. Meðal annars var rætt við Albert Guðmundsson og Ellert B Schram Vísir/Samsett

BBC hefur birt skemmti­legt inn­slag frá árinu 1964 þegar að KR mætti Liver­pool í Evrópu­keppni félagsliða. Kunnug­legum and­litum bregður fyrir, meðal annars Ellert B. Schram, þá leik­manni KR og Alberti Guð­munds­syni, fyrsta at­vinnu­manni Ís­lands í knatt­spyrnu.

Leikirnir milli Liverpool og KR 1964 voru sögulegir fyrir bæði lið en þau voru að taka þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn.

Liðin mættust fyrst á Laugardalsvelli fyrir framan rúmlega tíu þúsund manns í ágúst 1964 þar sem Liverpool vann 5-0 sigur og mánuði síðar vann enska liðið 6-1 þar sem Gunnar Felixson skoraði mark KR.

Verkefnið risavaxið fyrir KR-inga og í þessu skemmtilega innslagi frá BBC er breskum áhorfendum veitt innsýn í líf leikmanna félagsins og skemmtileg viðtöl tekin. 

Meðal annars sat fyrir svörum Albert Guðmundsson sem var fyrsti íslenski atvinumaðurinn í fótbolta og átti seinna eftir að eiga stórmerkilegan feril í stjórnmálum. Albert, sem lék meðal annars með enska stórliðinu Arsenal á sínum ferli, var ekki parsáttur við að KR hefði dregist á móti Liverpool árið 1964.

„Sem fyrrverandi atvinnumaður með Arsenal tek ég þessum leikjum of alvarlega. Veit ekki hvort ég eigi að hlægja eða gráta. Ég tel að þetta muni ekki vera góð auglýsing fyrir íslenska knattspyrnu. Munurinn á milli þessara tveggja liða er of mikill,“ sagði Albert meðal annars, með vindil í hægri hendi, á meðan að hann ræddi við Kenneth Allsop, fréttaritara BBC. 

Þó svo að sigur Liverpool í einvígi liðanna hafi verið stór á einvígið stóran sess í sögu enska stórliðsins. Það var árið 2024, þegar að sextíu ár voru liðin frá leik liðanna sem leikmenn KR sem mættu Liverpool árið 1964 voru heiðraðir á Anfield. 

Innslagið áhugaverða frá BBC um einvígi KR og Liverpool árið 1964 má sjá í heild sinni hér ofar í fréttinni. 

KR-ingar voru staðráðnir í því að reyna standa eins mikið í stórliði Liverpool og þeir gátu en auðsjáanlega, af viðtölum við þjálfara liðsins á þeim tíma sem og formann KR mátti heyra að við ofurefli var að etja. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×