Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Lovísa Arnardóttir skrifar 21. ágúst 2026 11:10 Hlaupið fer fram á morgun. Vísir/Lýður Valberg Yfir 15 þúsund keppendur eru nú skráðir í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer á morgun og samkvæmt tilkynningu styttist í að uppselt verði í heilt og hálft maraþon. Uppselt er í tíu kílómetra í keppnisflokki en enn hægt að kaupa almannen hlaupamiða í tíu kílómetra hlaup.
Fjórar vegalengdir eru í boði, heilt maraþon, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk, og því ættu allir aldurshópar og öll getustig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Skemmtiskokkið er ræst kl. 12 við Háskóla Íslands. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum eru aðeins um tvö til fjögur hundruð miðar eftir í hverjum flokki, nema í almennum tíu kílómetrum og skemmtisokk, en þó ekki nema þúsund miðar eftir. Í tilkynningu frá skipuleggjendum í gær kom fram að mikilvægt væri að þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka séu með rétta skráningu þegar kemur að rástíma og úrslitum. Þau sem eru með keppnismiða taka þátt í keppni í sinni vegalengd og aldursflokki og fá hlaupið skráð í afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands. Þá gerir keppnismiði þátttakendum kleift að nota lokatíma sinn til skráningar í önnur hlaup erlendis. Skráningu í keppnisflokk lýkur á miðnætti í dag, fimmtudaginn 20. ágúst. Í tilkynningu kemur fram að þau sem vilja ekki taka þátt í keppni heldur ná eigin markmiðum eiga kost á að kaupa almennan miða. Þátttakendur með almennan miða geta þannig ekki unnið til verðlauna en fá að sjálfsögðu medalíu og góðar móttökur þegar í markið er komið. Skráningu í almenna flokka lýkur á hlaupadegi, 22. ágúst. Þar kom einnig fram að áheitasöfnun gengi vel. Hún er nú komin yfir 210 milljónir en ætla má að samtals hafi safnast rúmir 2 milljarðar króna í góðgerðarmál frá því að áheitasöfnun hófst árið 2006. Enn er hægt að heita á hlaupara.
Reykjavíkurmaraþon Menningarnótt Hlaup Reykjavík Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira