Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar 21. ágúst 2026 10:00 Umræðan um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu stendur nú sem hæst og innan fárra daga fáum við niðurstöðu þjóðarinnar hvert Íslendingar stefna með þessar mögulegu aðildarviðræður. Fyrir bændur er þetta ekki fjarlæg utanríkispólitík eða fræðileg umræða um Evrópusamstarf. Þetta snýst um framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu, fjárfestinga til næstu áratuga og það grundvallaratriði hver eigi að ráða íslenskri landbúnaðarstefnu. Þess vegna er kominn tími til að spyrja beint: Hvað eru íslensk stjórnvöld tilbúin að gera til að tryggja framtíð íslensks landbúnaðar ef til inngöngu Íslands kemur? Fyrir nautgripabændur eru spurningarnar margar. Hvað verður um búvörusamningana? Hvað verður um greiðslumark mjólkur og verðmæti þess? Hvað verður um tollverndina? Hvaða áhrif hefði aukin samkeppni frá evrópskum landbúnaðarvörum á afurðaverð og afkomu bænda? Það dugar ekki að svara: „Það kemur í ljós í samningaviðræðunum.“ Bændur eiga rétt á svörum áður en starfsumhverfi þeirra er lagt undir. Hvað verður um greiðslumarkið? Íslenskir mjólkurframleiðendur hafa keypt greiðslumark fyrir verulegar fjárhæðir. Bændur hafa tekið lán, byggt fjós, fjárfest í mjaltaþjónum og öðrum tæknibúnaði og skipulagt rekstur sinn með núverandi kerfi sem eina af grundvallarforsendunum. Evrópusambandið afnam hins vegar kvótakerfið sitt í mjólkurframleiðslu árið 2015. Þess vegna verður að spyrja hvernig íslenska greiðslumarkskerfið samræmist framtíð innan sameiginlegrar landbúnaðarstefnu ESB og hvað verður um verðmæti greiðslumarks ef kerfið tæki stórkostlegum breytingum. Ef stjórnmálamenn geta ekki sagt bændum hvaða framtíð bíður þeirra verðmæta sem þeir hafa fjárfest í, geta þeir ekki ætlast til að bændur haldi áfram að fjárfesta fyrir hundruð milljóna króna eins og ekkert sé. Óvissan kostar Þetta er þáttur sem allt of lítið er rætt um. Mjólkurframleiðsla krefst gríðarlegra fjárfestinga. Fjós, mjaltaþjónar, fóðurkerfi, hauggeymslur og ræktun eru fjárfestingar til áratuga. Bóndi sem stendur frammi fyrir dýrri uppbyggingu þarf fyrirsjáanleika. Fyrst og síðast. Hvað gerist þegar honum er tilkynnt að tollverndin geti breyst, jafnvel verið afnumin, greiðslumarkið sé ekki fast í hendi og stuðningskerfi íslensks landsbúnaðar taki mögulega grundvallarbreytingum við mögulega inngöngu? Hann bíður. Bankinn heldur að sér höndum. Nýliðinn hikar - hættir mögulega við. Framkvæmdum er frestað. Það þarf ekki að ganga í Evrópusambandið til að aðildarferli hafi áhrif á landbúnað. Óvissa - og þá sérstaklega langvarandi óvissa - um framtíðarstarfsskilyrðin getur ein og sér dregið úr fjárfestingu og nýliðun. Búvörusamningar – hver á að ráða? Búvörusamningar eru svo annað lykilatriði í umræðunni. Við getum gagnrýnt þá, breytt þeim og krafist þess að þeir styðji betur við framleiðslu, nýliðun og afkomu bænda. En grundvallaratriðið er að þeir eru íslenskt stjórntæki. Í dag getum við sem þjóð ákveðið hvernig við viljum styðja íslenska matvælaframleiðslu. Ef til aðildar kæmi yrði íslenskur landbúnaður hluti af sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Mögulega er hægt að semja um sérlausnir, aðlögun og undanþágur. En tímabundin sérlausn og undanþága er ekki það sama og fullt ákvörðunarvald. Það er kjarni málsins. Af hverju ættum við að færa ákvörðunarvald um íslenska matvælaframleiðslu frá Íslandi þegar við getum mótað kerfið sjálf eftir íslenskum aðstæðum og þörfum? Tollvernd er ekki eitthvað hræðilegt Tollvernd íslensks landbúnaðar er gjarnan sett fram eins og hún sé vandamálið. Hún er það ekki. Hún er hluti af þeirri pólitísku ákvörðun að við ætlum að framleiða mat á Íslandi. Íslenskir nautgripabændur starfa ekki við sömu aðstæður og bændur á stærstu landbúnaðarsvæðum Evrópu. Vaxtartíminn á Íslandi er stuttur, veturinn kaldur og langur, fjárfestinga-, aðfanga- og flutningskostnaður er hár. Búin á Íslandi eru auk þess almennt lítil í alþjóðlegum samanburði. Íslenskir bændur óttast ekki samkeppni. En það er barnalegt að halda því fram að samkeppni sé sjálfkrafa sanngjörn þegar framleiðsluforsendur eru gjörólíkar. Sameiginlegur markaður ESB myndi gjörbreyta því umhverfi sem íslensk mjólkur- og nautakjötsframleiðsla starfar í. Og íslenski markaðurinn er lítill. Það þarf ekki mikið magn innflutnings til að taka umtalsverðan hluta hans. Þegar markaðshlutdeild íslenskrar framleiðslu er einu sinni töpuð getur orðið erfitt að vinna hana aftur. Mögulega ógjörningur. Ódýrasti mjólkurlítrinn er ekki sá öruggasti Þarna liggur kannski stærsta pólitíska spurningin. Viljum við meta íslenska matvælaframleiðslu eingöngu út frá því hvað mjólkurlítrinn eða kílóið af nautakjöti kostar í verslun í dag? Eða ætlum við að horfa lengra? Heimsfaraldur, stríð í Evrópu og röskun alþjóðlegra aðfangakeðja hafa sýnt okkur hversu hratt forsendur geta breyst. Það er auðvelt að tala um ódýran innflutning þegar flutningsleiðir eru opnar, markaðir virka og friður ríkir. En innflutt matvæli eru ekki íslensk framleiðslugeta. Erlend framleiðsla er ekki íslenskt fæðuöryggi. Þegar bóndi hefur gefist upp, bústofni fargað og mjólkurbíllinn hættur að renna í hlað og þekking glatast þá verður framleiðslan ekki endurreist á nokkrum vikum þegar næsta áfall kemur. Fæðuöryggi þarf að byggja upp áður en á reynir. Bændur eiga rétt á svörum Sumir stjórnmálamenn segja að bændur hafi ekkert að óttast við inngöngu í ESB. Þeir sem halda því fram hljóta þá að geta svarað þeim spurningum sem brenna á bændum og valda þeim áhyggjum.. Hvað verður um greiðslumarkið og þau verðmæti sem í því felast? Verður gerður við bændur nýr búvörusamningur? Hvað verður um tollvernd íslenskrar mjólkur- og nautakjötsframleiðslu? Hvernig verður tryggt að íslensk framleiðsla geti áfram keppt við innflutta matvöru? Það gengur ekki að segja annarsvegar að enginn viti hver niðurstaða viðræðna verði en hins vegar að bændur þurfi ekkert að óttast. Ef niðurstaðan er óþekkt þá er áhættan raunveruleg. Íslensk nautgriparækt hefur verið byggð upp kynslóð fram af kynslóð. Bændur hafa fjárfest í jörðum, ræktun, bústofni, byggingum, tækni og framleiðslurétti. Þeir eiga rétt á því að framtíð þeirrar uppbyggingar sé ekki afgreidd sem aukaatriði í komandi viðræðum, að stjórnmálamenn sýni að þeir skilji hagsmuni bænda og hvernig þeir ætla að standa vörð um þá. Íslensk mjólkurframleiðsla á ekki að vera skiptimynt í Brussel og ekki má líta á fæðuöryggi þjóðarinnar sem fórnarkostnað fyrir ESB aðild. Og ákvörðunarvaldið um framtíð íslensks landbúnaðar á að vera þar sem ábyrgðin liggur – hjá íslensku þjóðinni sjálfri. Höfundur er formaður Nautgripabænda BÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar hjátrúin tekur völdin Ásmundur Gunnarsson skrifar Skoðun Utanríkisráðherra hefur ekki slíkan rétt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Breytum ekki bara einkunnakvarðanum – bætum námsmatið Sævar Þór Helgason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Friðarsúlan er langt frá því að vera friðartákn fyrir náttúruna Kristján Kristjánsson skrifar Skoðun Mikilvægi samstarfs á norðurslóðum Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason skrifar Skoðun Að bera sorg á torg Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson skrifar Skoðun Hver á að gæta varðanna í Róm? Páll Ásgrímsson skrifar Skoðun Öryggi í skólum krefst aðgerða og eftirfylgni Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Betri (umferðar) borg fyrir börn Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun