Körfubolti

„Þurfum að gera skítaverkin betur en and­stæðingurinn“

Andri Broddason skrifar
Kristinn Pálsson verður lykilmaður hjá Íslandi í komandi leikjum í undankeppni heimsmeistaramótsins.
Kristinn Pálsson verður lykilmaður hjá Íslandi í komandi leikjum í undankeppni heimsmeistaramótsins. Vísir / Anton Brink

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnlandi í æfingaleik í kvöld. Leikurinn er hluti af undirbúning fyrir undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta 2027.

Kristinn Pálsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta er bjartsýnn fyrir komandi leiki og alltaf gama að koma saman með landsliðinu.

„Það er alltaf jafn gaman að æfa með þessum gaurum. Þetta er nánast eins og félagslið, við erum búnir að vera saman lengi og þekkjum hvorn annann upp á tíu.“

Eiga góðan möguleika á að komast á HM

Íslenska liðið mætir Finnlandi í kvöld í æfingaleik en í næstu viku spilar liðið gegn Slóvakíu á útivelli og Tyrklandi á heimavelli. Þetta eru mikilvægir leikir í milliriðli undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta. Þar sem Ísland á enn séns á að komast á heimsmeistaramótið sem verður haldið á næsta ári.

„Það er alltaf sama tuggan í þessu, við þurfum að gera skítaverkin betur heldur en andstæðingurinn. Við erum að fara í þrjá erfiða leiki og spila gegn leikmönnum í hæsta gæðaflokki. Til að eiga séns þá þurfum við að stoppa þá og við förum með hausinn hátt í leikinn.“

Mæta stjörnuleikmönnum í NBA og taplausu liði

Mánudaginn 31. ágúst kemur Tyrkland í heimsókn til Íslands en liðið er með fullt hús stiga í unankeppninni.

„Við þurfum á öllum stuðningi að halda. Síðast þegar við mættum þeim í höllinni þá unnum við þá en þeir eru með aðeins öðruvísi lið núna. Við höfum sýnt það áður að við getum unnið þessar stóru þjóðir. Við eigum séns þangað til lokaflautið fer.“

Síðasti leikur gegn Tyrklandi í Laugardalshöllinni var í febrúar á síðasta ári þar sem Ísland vann 83-71. En áður en Ísland mætir Tyrklandi fer liðið til Sagreb og mætir Serbíu. Þar eru stjórstjörnur í NBA-deildinni og þar á meðal er Nikola Jokic sem er að mörgum talinn einn besti körfuboltamaður heims.

„Það er mjög spennandi verkefni en við höfum ekki enn farið yfir leikplanið. Þetta verður skemmtileg áskorun og heiður að fá að vera með þeim á gólfinu.“

Fór frá Spáni til Ítalíu

Á síðasta tímabili lék hann með Jesi í ítölsku B-deildinni og hefur spilað vel þar. Fyrr í sumar skrifaði hann undir samning við HLA Alicante sem hann segir vera stærra lið.

„Ég spilaði ágætlega á Ítalíu í fyrra og er að taka skref upp á við. Maður er að reyna að elta einhvern feril í þessu og sjá hvað gerist. Ég er mjög spenntur fyrir komandi verkefni.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×