Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Agnar Már Másson skrifar 20. ágúst 2026 21:02 Hvalurinn sést betur í myndskeiðinu hér að neðan. Skjáskot/Sýn Hnúfubakur sást svamlandi í Faxaflóa í dag skammt frá Reykjavík. Ferðamenn hjá Sólfarinu við Sæbraut ráku upp stór augu þegar þau sáu dýrið. Leiðsögumaður segir það ekki algengt að sjá slík sporðaköst nálægt landi.
Þýski ferðamaðurinn Michael segir við fréttastofu hafa verið heillaður af hvalnum þó að hann hafi aðeins séð hann úr fjarlægð. „Ég sá bara sporðinn skjótast upp og niður, og svo [hvalinn] blása út lofti,“ segir hann. „Við spöruðum pening með því að geta sleppt því að fara í hvalaskoðunarferð,“ bætir hann við kíminn. Ferðalangur hans, hin kanadíska Anne, segist því hafa séð hval í fyrsta sinn. Hún hafi aðeins séð hval áður í sjónvarpi. „Þetta eru enn þá meiri töfrar þegar maður sér svona í alvörunni.“ Hvalaskoðunarskip auk smærri báta þyrptust að dýrinu, enda þurfti ekki að sigla langt frá bryggju til að koma auga á dýrið. Hin þýsk-breska Anna Richter hefur verið hvalaleiðsögumaður á Íslandi í rúm fjögur ár og segir það afar óalgengt að sjá dýrin svona nálægt höfn. „Það er ekki algengt á sumrin, en á veturna koma þeir talsvert nær landi. Það gæti verið hitastigsbreyting sem er að valda þessu, þar sem hitastigið er að falla niður,“ segir hún. „En þetta er engu að síður mjög sjaldgæft.“ Hún segir að hvalurinn hafi virst hátt í fimmtán metrar að lengd, jafnvel stærri, þótt erfitt sé að segja til um það. Hún efast því um að um kálf sé að ræða.
Hvalir Reykjavík Ferðaþjónusta Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira