ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar 20. ágúst 2026 10:32 Umræðan um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu hefur heltekið þjóðina, og varla að maður geti talist maður meðal manna án þess að skrifa um hana grein. Í stað þess að fjalla um efnismál ESB vil ég hér varpa fram dýpri spurningu sem ég tel að muni ráða úrslita atkvæði þjóðarinnar. Erum við með inngöngu í Evrópusambandið að afsala fullveldi þjóðarinnar eða útvíkka það? Þótt kosið sé um viðræður en ekki inngöngu liggur stærri spurningin um aðild óhjákvæmilega að baki. Það er í eðli okkar að þrá velmegun, en ekki síður þráum við frelsi. Við þráum frelsi til þess að taka okkar eigin ákvarðanir og móta eigin framtíð. Þetta á bæði við í okkar persónulega lífi og í pólitík. Ef við lítum svo á að með inngöngu í ESB séum við að afsala okkur fullveldi þjóðarinnar, þá skipta vangaveltur um tölur á blaði litlu máli. En ættum við að líta svo á? Tökum skref til baka og lítum á það stærra samhengi sem við tilheyrum sem einstaklingar. Öll tilheyrum við bæði sveitarfélagi og þjóðríki. Bæði eru þetta stofnanir sem hafa mikið vald yfir okkur, en ekki lítum við svo á að við höfum afsalað sjálfsforræði okkar til þjóðarinnar. Að vera Íslendingur er sterkur hluti af okkar sjálfsmynd og við lítum því á þjóðina sem útvíkkun af okkur sjálfum. Sem hluti af þjóð öðlumst við hlutdeild í sameiginlegu valdi sem er meira en vald hvers okkar í einangrun. Eðlileg næsta spurning er því hvort við lítum líka á okkur sem Evrópubúa. Landfræðilega tilheyrir Ísland Evrópu, en lega okkar í Norður-Atlantshafi hefur mótað sjálfsmynd sem er að einhverju leyti frábrugðin sjálfsmynd meginlandsþjóðanna. Við höfum um aldir þurft að reiða okkur á eigin auðlindir, eigið hafsvæði og tengsl yfir Atlantshafið ekki síður en við meginland Evrópu. Það er því ekki sjálfgefið að sú evrópska sjálfsmynd sem liggur að baki sífellt nánari samruna Evrópuríkja eigi sér jafn sterkar rætur hér. Þar á móti kemur að hagkerfi og stjórnsýsla Íslands eru nú þegar samofin Evrópu og að sumu leyti erum við þegar komin með annan fótinn inn um dyrnar á ESB. Ríki ESB eru vinaríki okkar og deila sömu hugsjónum og gildum þegar kemur að lýðræðismálum, jafnréttismálum og umhverfismálum. Öll þessi gildi eiga nú undir högg að sækja og því vaknar sú spurning hvort við viljum þá standa þéttar með vinaríkjum okkar á slíkum tímum. Tilgangurinn með þessari grein er ekki að úrskurða um hvort Ísland eigi heima í ESB. Hann er að benda á að umræða um vexti, tolla, sjávarútveg og önnur hagsmunamál segir ekki alla söguna. Þegar kjósendur gera upp hug sinn stendur dýpri spurning eftir: Erum við með inngöngu í Evrópusambandið að afsala fullveldi þjóðarinnar eða útvíkka það? Höfundur er hagfræðinemi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar