Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Agnar Már Másson skrifar 18. ágúst 2026 19:38 Vignir S. Halldórsson verktaki óttast að Seðlabankinn hækki stýrivexti á morgun, miðvikudag. Vísir „Ef þessir háu herrar í svörtuloftum ætla að fara að botnfrysta markaðinn og þar með framleiðslu íbúðarhúsnæðis, þá vitum við hvernig þetta endar,“ segir Vignir S. Halldórsson verktaki sem óttast að peningastefnunefnd Seðlabankans hækki vexti á morgun. „Þá springur allt í loft upp aftur og tugprósenta hækkun á íbúðaverði verður til.“
Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnir stýrivaxtaákvörðun sína á morgun. Landsbankinn og Íslandsbanki spá því að vextirnir verði hækkaðir en Samtök iðnaðarins hafa kallað eftir því að Seðlabankastjóri haldi þeim í 7,75 prósentum, meðal annars vegna þess að vanskilahlutfall byggingariðnaðar hefur vaxið hratt. Vignir er faglegur framkvæmdastjóri Öxar ehf. en hann óttast að seðlabankinn hækki vexti í átta prósent í fyrramálið, miðvikudag. „Já, við óttumst það. En ég hreinlega trúi því ekki,“ segir Vignir, sem starfar hjá Öxari byggingarfélagi, í samtali við Smára Jökul Jónsson fréttamann í kvöldfréttum Sýnar. Már Wolfgang Mixa hagfræðingur sagði að verktakar gætu hugsanlega þurft að lækka söluverð hressilega ef þeir vilja „losa sig úr snörunni“. „Svigrúmið er nú ekki svona mikið eins og hann er að lýsa þarna,“ segir Vignir, inntur eftir viðbrögðum við ummælum Más. „Einhverjir munu reyna það. Auðvitað reyna menn að gera það sem þeir geta.“ Vignir segir að enn seljist einhverjar byggingar, aðallega minni eignir. „Þetta er ekki allt botnfrosið en ef við förum að fá hærri vexti þá herðir það enn þá ólina og menn hætta bara og byrja ekki á nýjum verkefnum. Þetta verður bara erfitt,“ segir hann. „Við þekkjum þetta. Ég er búinn að vera í þrjátíu ár í þessum bransa og þetta er í þriðja eða fjórða skiptið sem við tökum þessi höfrungahlaup. Ég skil bara ekki að árið 2026 hefðum við ekki verið búin að finna lausn á þessu.“ Hann vill að stjórnvöld „byrji að gera eitthvað og hætti að tala“. „Það er alltaf talað um að það eigi að auðvelda okkur hlutina og gera þægilegra regluverk. Ég hef ekki séð það; það er enn að þyngjast,“ segir hann. Þá telur hann að gera þurfi fyrstu kaupendum auðveldara fyrir. „Ég skil ekki alveg þetta verkalýðsfélagsdæmi þar sem verið er að moka upp leiguíbúðum í stað þess að hjálpa fólki að eignast. Mér finnst það eðlilegast.“ Þá hafi verktakar sjálfir reynt að heimfæra erlendar lausnir yfir á íslenskan markað. „En svo er bara slökkt í okkur, til dæmis með okkar útgáfu af hlutdeildarlánum og öðru slíku.“
Kvöldfréttir Efnahagsmál Seðlabankinn Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetursins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld Sjá meira