„Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2026 22:30 Russell Westbrook var alltaf á fullu gasi inn á vellinum og gaf aldrei neitt eftir. Getty/Justin Ford Russell Westbrook hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir átján keppnistímabil í NBA-deildinni í körfubolta.
Þetta tilkynnti þessi 37 ára gamli leikstjórnandi á samfélagsmiðlum sínum. Westbrook var árið 2017 valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar (MVP) og hefur níu sinnum verið valinn í stjörnulið NBA. Bæði árin 2015 og 2017 var hann stigahæstur í allri deildinni. „Stundum veistu ekki einu sinni hvenær þú hefur þegar horft á endinn,“ skrifaði hinn 37 ára Westbrook í færslu sinni, sem innihélt myndband af ferli hans með frásögn leikarans Michael B. Jordan. „Þú þurftir að vera þarna. Og nú er þetta búið.“ View this post on Instagram A post shared by Russell Westbrook (@russwest44) Westbrook, sem hefur níu sinnum verið valinn í stjörnuliðið, er með 20,9 stig, 6,9 fráköst og 8,0 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferlinum og á NBA-metið yfir flestar þrefaldar tvennur á ferlinum, eða 209, en hann fór fram úr langvarandi meti Oscar Robertson upp á 181 árið 2021. Það var met sem hafði staðið síðan 1974. Westbrook varð aldrei NBA-meistari en hann náði að spila fyrir Oklahoma City Thunder, Houston Rockets, Washington Wizards, Los Angeles Lakers, Los Angeles Clippers, Denver Nuggets og Sacramento Kings. „Russell Westbrook er hinn fullkomni keppnismaður,“ sagði Sam Presti, framkvæmdastjóri Thunder, í yfirlýsingu. „Innri trú hans og taumlaust óttaleysi hjálpuðu til við að leggja grunninn að félaginu okkar frá fyrsta degi árið 2008 og hann jók sjálfstraustið og veitti samfélagi okkar innblástur á hverju ári eftir það.“ Á síðasta tímabili sínu byrjaði Westbrook 58 leiki fyrir Sacramento Kings og var með 15,2 stig, 6,7 stoðsendingar og 5,4 fráköst að meðaltali. Á tímabilinu varð hann sá leikmaður sem hefur tekið flest fráköst í stöðu leikstjórnanda og varð annar leikmaðurinn í sögu deildarinnar, ásamt LeBron James, til að ná 25.000 stigum og 10.000 stoðsendingum. View this post on Instagram A post shared by SOG Basketball | NBA Rankings (@sogbasketball) View this post on Instagram A post shared by CBS Sports (@cbssports)
NBA Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Fótbolti Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingarnir í Magdeburg í eldlínunni Sport Fleiri fréttir Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Sjá meira