Viðskipti innlent

Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kvika
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kvika Aðsend

Kvika banki hagnaðist um 1545 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi. Hagnaður sama tímabils í fyrra, árið 2025, var rúmir tveir milljarðar og lækkar hagnaður um 24 prósent milli ára.

Mestu munar um samdrátt í hreinum þóknanatekjum sem dragast saman um tæp 27 prósent milli ára og fara úr rúmum 1,9 milljörðum í rúmlega 1,4 milljarða. Arðsemi efnislegs eiginfjár (RoTE) lækkar milli ára og fer úr 18,5 prósentum í 15,1 prósent.

Rekstrarkostnaður lækkaði um 1,1 prósent milli ára og nam 2,95 milljörðum á ársfjórðungnum.

Fyrri helmingur árs þó sterkur

Myndin breytist þó þegar horft er á fyrri helming árs og borið saman við fyrri helming árs í fyrra en hagnaður á tímabilinu eykst um 40 prósent milli ára. Kvika banki hagnaðist um tæpa 2,3 milljarða á fyrri helmingi árs en hagnaðurinn í fyrra var rúmir 1,6 milljarðar. Hagnaður fyrir skatta var 3,35 milljarðar.

Nokkur vöxtur er í innlánum frá viðskiptavinum á árinu sem nema nú 201 milljarði króna, samanborið við 173 milljarða í lok árs 2025. Nemur vöxturinn því 16,5 prósentum á tímabilinu.

Einnig er vöxtur í útlánum Kviku banka á tímabilinu. Þau nema nú 223 milljörðum króna og hafa aukist um 7,6 prósent á fyrri helmingi ársins.

Kvika banki átti fyrr á árinu í viðræðum við Arion banka um sameiningu. Vísir/Lýður

Þá dregst eigið fé saman, úr 69 milljörðum í 58 milljarða króna, og nemur eiginfjárhlutfall nú 23,0 prósentum. Bankinn greiddi tíu milljarða arðgreiðslu út til eigenda sinna í júní.

Athygli vekur að eignir í stýringu lækka úr 469 milljörðum í 449 milljarða króna.

Prýðilegur fjórðungur samkvæmt forstjóranum

Í tilkynningu fagnar Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, því að rekstrarkostnaður dragist saman á sama tíma og verðbólga geisar. Ármann skýrir samdrátt í þóknanatekjum með því að þær hafi verið óvenju háar á öðrum ársfjórðungi 2025 vegna útboðs á hlut ríkisins í Íslandsbanka og erfiðra aðstæðna á íslenskum hlutabréfamarkaði. Áfram sé unnið að hagræðingu innan bankans, sem réðst meðal annars í uppsagnir í júní, og stefnt sé á að selja dótturfélag hans, Straum.

„Rekstur bankans á öðrum fjórðungi gekk prýðilega og mörg stór skref voru stigin í þá átt að auka arðsemi bankans til framtíðar. Fyrri árshelmingur var í heild sinni mjög góður og umtalsverð hagnaðaraukning milli ára,“ er haft eftir Ármanni í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×