Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Kjartan Kjartansson skrifar 12. ágúst 2026 13:36 Úkraínskir hermenn á ferð um bæinn Druzhkivka í Donetsk á vígstöðvunum í Austur-Úkraínu. Tæplega fjögur og hálft ár eru liðin frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í landið. AP/Iryna Rybakova Tveir eru sagðir látnir og tólf særðir eftir árás Úkraínumanna á flotastöð Rússa við Svartahaf í nótt. Forseti Úkraínu segirr dróna og flugskeyti hafa hæft loftvarnarkerfi Rússa, bryggjur og aðra hafnarinnviði.
Hundruð úkraínskra dróna réðust á flotastöðina í Novorossiysk ásamt fleiri skotmörkum í nótt, að sögn Veniamin Kondratjev, héraðsstjóra í Krasnodar. Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að fimm hundruð þeirra hafi verið skotnir niður. Kondratjev heldur því fram að átta ára gamalt barn hafi látið lífið í Novorossiyak og annar maður sem særðist í Temrjuk. Tólf aðrir hefðu særst í árásinni. Brak úr drónum sem voru skotnir niður hefðu lent á verksmiðjum og íbúðarhúsum. Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás næturinnar einstaka og lýsti flotastöðinni í Novorossiyak sem síðasta stóra vígi rússneska flotans við Svartahaf. AP-fréttastofan segir að Rússar hafi fært stærsta hluta flota síns til Novorossiyak vegna linnulausra árása Úkraínumanna á flotastöðina í Sevastopol á Krímskaga við upphaf allsherjarinnrásar Rússa í nágrannaríkið fyrir fjórum og hálfu ári. Úkraínsk stjórnvöld segja að tveir hafi látið lífið í dróna- og eldflaugaárásum Rússa á Kherson í suðurhluta landsins í nótt. Þá hafi verslunarmiðstöð í Saporidsjia skemmst í árásunum.
Úkraína Rússland Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Sjá meira