Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. ágúst 2026 17:05 Ófærufoss er í ánni Nyrðri-Ófæru sem fellur ofan í Eldgjá. Samsett Lögreglan á Suðurlandi reynir nú að hafa uppi á breskum hjónum sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á laugardaginn. Lögreglu barst tilkynning um málið í gær og reynir nú að rekja ferðir fólksins.
Greint var frá því í gær í Facebook-færslu að erlendir ferðamenn hafi skilið fimm ára dreng eftir í bíl er þau gengu að Ófærufossi sem fellur ofan í Eldgjá. Íslensk kona lýsir því að hafa fundið drenginn grátandi á bílastæðinu og róað hann þar til foreldrarnir skiluðu sér úr göngunni. Ferðamennirnir eru á ferð um landið á bílaleigubíl frá fyrirtækinu Camp Easy ef marka má myndir úr færslunni. Lögreglan á Suðurlandi hefur fengið upplýsingar frá bílaleigunni um leigjendurna. „Við erum með þetta mál til skoðunar og erum að fá upplýsingar frá bílaleigufyrirtækinu. Við fengum upplýsingar um skráðan leigjanda og erum bara að vinna í því að hafa uppi á viðkomandi,“ segir Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi. Grunur sé um að ferðamennirnir séu enn á landinu og lögregla reynir að rekja ferðir fólksins en ekki hefur enn tekist að hafa uppi á því. Málið sé rannsakað sem barnaverndarlagabrot. „Samkvæmt því sem tilkynningin segir er grunur um barnaverndarlagabrot, vanrækslu umsjáraðila gegn barni, en það veltur svolítið á því hvaða gögn við höfum í höndunum og að við þurfum að hafa uppi á fólkinu,“ segir Íris Edda.
Lögreglumál Börn og uppeldi Skaftárhreppur Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira