Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Freyja Þórisdóttir skrifar 10. ágúst 2026 12:54 Gæludýr eru ekki í „einni einustu hættu“ þegar sólmyrkvinn gengur yfir þann 12. ágúst næstkomandi að sögn Stjörnu-Sævars. Vísir/Vilhelm Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst.
Þessi er sjötti í röð fróðleiksmola á Vísi sem munu birtast reglulega þangað til að almyrkvi fer yfir sólu á sjötta tímanum síðdegis tólfta ágúst næstkomandi. Almyrkvi frá sólu hefur ekki sést á Íslandi í 72 ár en föstudaginn 20. mars 2015 varð deildarmyrkvi hérlendis. Hundar þurfa ekki sólmyrkvagleraugu Gríðarlegur fjöldi fólks mun safnast saman á vestanverðu landinu þann 12. ágúst í von um að berja almyrkva á sólu augum í fyrsta, eða í sumum tilfellum annað skiptið, hér á landi. Sumir hafa til dæmis velt því upp hvort það þurfi að hafa áhyggjur af augum dýranna en líkt og fram hefur komið í fréttum Vísis er nauðsynlegt fyrir fólk að vernda augun þegar horft er upp á sólina á meðan á deildarmyrkva stendur og er einfaldast að gera það með sérstökum sólmyrkvagleraugum. „Hundar þurfa ekki sólmyrkvagleraugu, ekki kettir og ekki páfagaukar,“ segir Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, en hann útskýrði að það eina sem gæti gerst væri að þau hagi sér eins og það sé komið kvöld. „Það er bara rökkur að skella á og þetta er bara skuggi,“ segir hann og ítrekar: „Nákvæmlega það sama og gerist hvern einasta dag þegar sólin sest, þannig að dýr eru ekki í neinni einustu hættu, hundar þurfa ekki að vera inni og ekki kettir heldur.“ Hanar haldi að það sé kominn morgunn Þá mun hegðun fugla þegar myrkvinn gengur yfir vera áhugaverðust segir Sævar. Í almyrkva sem var árið 2017 í Bandaríkjunum fylgdist vísindafólk með atferli sautján dýrategunda en helstu viðbrögð voru að fuglar hættu að syngja og dagdýr tóku sér bólfestu á næturstað á meðan næturdýr rumskuðu. Sævar Helgi Bragason hefur verið allt í öllu þegar kemur að sólmyrkvafræðslu undanfarin misseri en hann heldur úti vefsíðunni sólmyrkvi2026 punktur is.vísir/baldur Í annarri rannsókn frá árinu 2017 var hljóðnemum komið fyrir innan um blóm í engjum víða um Bandaríkin. Kom þá í ljós að býflugur hættu að suða við almyrkva. Sumar býflugur hægðu á flugi sínu þegar birta dvínaði og hættu alveg flugi þegar dimmdi við almyrkvann, er fram kemur á solmyrkvi2026.is, sem Sævar ritstýrir. Þar segir einnig frá því að sumir fuglar hafi brugðist við lokum almyrkva með því að hefja morgunsöngva. Þekkt sé að hanar gali að almyrkva loknum og boði nýjan dag eftir stystu nótt ævinnar. Við höfum þegar snert á því hvers vegna venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst, hverju fólk má búast við ef það rætist úr veðurspá og það verður skýjað þegar almyrkvinn verður, hvernig myrkvinn þann 12. ágúst næstkomandi sé ólíkur þeim sem var árið 2015, hvernig myrkvarnir hafa dreifst í gegnum tíðina hérlendis og nú nýlegast hvaða undur munu keppast um athyglina á himni þann 12. ágúst næstkomandi.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Dýr Hundar Kettir Bandaríkin Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Tveir á vinnupalli sem hrundi Innlent Fleiri fréttir Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Sjá meira