Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar 7. ágúst 2026 07:32 Námsmat er mikilvægur og einnig umdeildur þáttur í skólastarfi. Því er ætlað það flókna verkefni að mæla og meta getu barna, stýra námsferlinu, hvetja til framfara og upplýsa foreldra og næsta skólastig um námslega stöðu. Í skólakerfinu er togstreita um hvernig best er að standa að þessu mati. Ólík sjónarmið um einkunnir Umræðan um námsmat snýst oft um ágæti þess að nota útbreidda framsetningu, svo sem tölustafi. Margir telja tölulegar einkunnir veita skýra, einfalda og hlutlæga mynd af stöðu nemenda. Rök þeirra eru að tölur tryggi gagnsæi og samræmi milli kennara og ólíkra skóla. Fyrir sumum þjóna háar einkunnir líka sem öflugur ytri hvati sem verðlaunar vinnusemi. Aftur á móti gefa rannsóknir til kynna að algengir kvarðar tryggi þetta samræmi alls ekki sjálfkrafa, þar sem mat er alltaf að einhverju leyti huglægt. Enn fremur óttast gagnrýnendur að töluleg einkunnagjöf vinni gegn almennri velferð barna og ýti undir námskvíða. Stærsta áhyggjuefnið er að þegar árangur í námi er smættaður niður í einn tölustaf, þá breytist viðhorf nemenda til námsins; þeir fari að læra í þeim tilgangi einum að fá háa tölu. Þetta getur gert það að verkum að nemendur fara að óttast mistök. Þeir veigra sér þá við að spreyta sig á nýjum og krefjandi verkefnum af ótta við að lækka í meðaltali. Slíkt getur hamlað sköpun og dýpri skilningi. Meðaltal eða hæfni Hluti af viðhorfsmuninum snýst um það hvað einkunn á að gefa til kynna. Þeir sem vilja halda í hefðbundnar lokaeinkunnir líta svo á að meðaltal gefi góða heildarmynd af frammistöðu og vinnusemi nemandans yfir skólaárið. Sérfræðingar í hæfnimiðuðu námi benda hins vegar á að stærsta hættan við tölurnar liggi einmitt í þessari meðaltalsreglu. Þegar ólíkir námsþættir eru reiknaðir saman í eina meðaleinkunn glatast dýrmætar upplýsingar um raunverulega færni og námsþarfir nemenda. Ein lokatala getur auðveldlega falið það að nemandi sé framúrskarandi í ritun en eigi í miklum erfiðleikum með lestur. Talan sýnir niðurstöðu en hún sýnir ekki hvar þörfin á stuðningi liggur. Í stað þess að vera lokadómur ætti kvarði að þjóna sem sjónrænt verkfæri sem sýnir stöðu nemandans gagnvart ólíkum hæfniviðmiðum. Með því að tengja mat við lýsandi og uppbyggilega endurgjöf verður námsmatið að gagnlegum leiðarvísi um framfarir í stað þess að vera einungis staðfesting á lokatölum Seinkuð einkunnagjöf og verkfæri til vaxtar Á hinum Norðurlöndunum hefst formleg einkunnagjöf mun seinna en áformað er hér á landi. Þar er byrjað að nota einkunnir í 6. eða 8. bekk en ekki í 4. bekk. Sumir vilja einkunnir snemma til að sjá stöðu barna, hjálpa þeim og hvetja þau áfram. Aðrir benda á reynslu Norðurlandanna þar sem seinkuð einkunnagjöf verndar áhugahvöt barna á fyrstu árunum í skóla og dregur úr samanburði, án þess að slakað sé á faglegum kröfum. Í norrænu kerfunum eru einkunnir notaðar sem verkfæri til vaxtar en ekki samanburðar. Námsmatið byggist á skýrum hæfniviðmiðum sem lýsa hæfni nemenda. Sanngirni, jafnræði og innleiðing breytinga Í þessu samhengi er lykilatriði að greina á milli jafnræðis og sanngirni. Annars vegar er það viðhorf að jafnræði náist best með því að gera nákvæmlega sömu kröfur til allra nemenda á nákvæmlega sama tíma, og mæla alla með sömu tölulegu mælistikunni. Þetta er talið tryggja mestu hlutlægnina og koma í veg fyrir misræmi. Hins vegar er það sjónarhorn að jafnræði og sanngirni séu ekki það sama. Nemendur hafa ólíkan bakgrunn og mismunandi þarfir. Sveigjanleg kennsla og einstaklingsmiðaður námshraði mæta þessum þörfum, en tölulegar einkunnir geta refsað þeim sem byrja hægar en hafa samt burði til að ná langt. Sanngirni felst í því að gefa öllum þau verkfæri sem þeir þurfa til að ná árangri, ekki að þvinga alla í sama mót. Gæði menntunar velta nefnilega ekki á einkunnakerfinu sjálfu heldur hvernig kennarar nota niðurstöðurnar til að bæta kennsluna og styðja við nemendur. Með því að færa okkur nær hæfnimiðuðu námi getum við skapað skólakerfi þar sem allir vinna saman að velferð og raunverulegum framförum nemenda. Ef það á að breyta framsetningu námsmats í tölur verður að hafa í huga að breytingar eru langtímaverkefni sem krefjast vandaðs undirbúnings, tíma og stöðugrar faglegrar þróunar. Til að vel takist skiptir mestu samstaða og sameiginlegur skilningur allra hlutaðeigandi á þeim mælikvörðum sem notaðir eru. Höfundur er fyrrum skólastjórnandi og höfundur handbókar um námsmat. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun