Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar 5. ágúst 2026 08:03 Samkvæmt a.m.k. fimm opinberum skýrslum sem unnar hafa verið á síðustu 25 árum hafa skattgreiðendur og ríkissjóður orðið fyrir endurteknum og mjög alvarlegum áföllum. Þessar skýrslur – skattsvikaskýrslan frá 2005, Aflandsskýrslan, Milliverðlagningarskýrslan, Rannsóknarskýrsla Alþingis um bankahrunið og tengdar rannsóknir – draga upp samfellda mynd af stöðugum kerfisbundnum veikleikum í ríkisfjármálunum, seinkuðum viðbrögðum og skorti á raunverulegri ábyrgð. Nýjasta heildstæða matið á umfangi skattsvika er yfir tuttugu ára gamalt. Engin sambærileg úttekt hefur verið gerð síðan. Allar uppfærslur til dagsins í dag byggjast því á gömlum grunni, en í þessari umfjöllun aðlagaðar að núverandi skattstofni og verðlagi. Árlegt heildartap ríkis og sveitarfélaga vegna allra þessara þátta er enn áætlað á bilinu 150–180 milljarða króna og enginn virðist sakna þessara peninga. Ef þetta árlega tap er skoðað yfir 12 - 17 ára tímabil nálgast uppsafnað heildartap vegna þeirra atriða sem skýrslurnar rekja um eða yfir 1.500 milljarða króna. Við það bætist tjón þegnanna vegna eignamissis í bankahruninu. Um 25 til 30.000 þúsund fjölskyldur misstu heimili, sparifé eða aleigu sína. Áætlað heildartjón þessa hóps hleypur á 900 til 1200 milljörðum. Allar tölur á núvirði. Framúrkeyrsla Nýja Landspítalans, þar sem upphaflegar áætlanir lágu mun lægra en núverandi heildarkostnaður í kringum 200 milljarða, bætir við a.m.k. 100–150 milljörðum. Þegar Icesave og önnur tengd áföll eru tekin með er heildartap þjóðarinnar, skjalfest á síðustu 12 til 17 árum, komið í um eða yfir 3000 milljarða króna, meira og minna vegna eftirlitsleysis. Í þessari tölu er ekki vanreiknuð auðlindagjöld ca 300 til 500 milljarðar yfir tímabilið. Þessar tölur innihalda augljóslega ekki allt. Þær ná ekki yfir allan kostnað við opinberar framkvæmdir sem fóru fram úr áætlun, né fullan efnahagslegan skaða af bankahruninu. Þær eru samt nægilega háar til að vekja spurningu: Hvernig getur svona yfirgripsmikið sukk og hrakleg meðferð opinberra fjármuna grasserað í áratugi fyrir framan augun á okkur, þótt búið sé að rannsaka það og staðfesta í opinberum skýrslum? Mynstrið sem kemur fram er ekki tilviljanakennt. Tengd viðskipti, notkun aflandsfélaga til að fela eignarhald og hagnað, rangfærslur og veikar varnir gegn milliverðlagningu endurtaka sig. Í bankahruninu var eigið fé bankanna í raun miklu veikara en opinberar tölur sýndu vegna lána til tengdra aðila. Í skattamálunum voru sömu aðferðir notaðar til að færa tekjur og eignir út fyrir seilingarsvið skattyfirvalda. Í báðum tilvikum kom eftirlitið of seint og of veikt. Í heildina virðist þetta vera skipulagt, kerfisbundið kerfi sem skipulega tappar fjármunum úr ríkissjóði eftir þeim glufum sem kerfið býður uppá. Ríkisendurskoðandi hefur það hlutverk að hafa eftirlit með fjárreiðum ríkisins, yfirfara forsendur álagningar skatta og gjalda og meta hvort opinbert fé sé nýtt á hagkvæman hátt. Embættið hefur bent á veikleika, þar á meðal í stórum framkvæmdum. Hins vegar hefur það takmarkað vald: Það getur greint og mælt með, en ekki þvingað fram aðgerðir. Þegar skýrslur þess – líkt og aðrar opinberar skýrslur – leiða ekki til kerfisbreytinga, er vandinn ekki hjá embættinu heldur hjá þeim sem eiga að bregðast við - stjórnmálamönnunum, stjórnsýslu og ráðherrum. Kjörnir fulltrúar hafa ítrekað verið á gráu svæði eða farið yfir strikið með fullkomnu andvara- og aðgerðarleysi. Skýrslurnar sýna ekki að stjórnmálaflokkar hafi sem slíkir skipulagt refsiverð brot. Þær sýna hins vegar að pólitískt umhverfi – forgangsröðun, seinagangur við lagasetningu og andvaraleysi gagnvart viðvörunum – gert þessum málum kleift að vaxa. CFC-reglur, sem skattsvikaskýrslan 2005 kallaði eftir, komu ekki fyrr en 2011. Eftirlit með bönkunum brást árum saman. Upplýsingar um aflandsfélög voru of lengi of takmarkaðar. Þetta ástand með hriplekan ríkissjóð mun ríkja áfram ef engar grundvallarbreytingar verða. Ein spurning sem þjóðin ætti að skoða núna er hvort utanaðkomandi rammi – til dæmis nánari samningar við Evrópusambandið – gætu falið í sér einhvers konar vekjaraklukkur. Í ESB eru til formlegar reglur um ríkisfjármál: halli má ekki fara yfir 3% af VLF, skuldir eiga að vera undir 60% eða ef þær lækka ekki nægilega hratt, og of mikið halla-ferli - getur það leitt til opinberra viðvarana, ráðlegginga og í sumum tilfellum sekta. Evrópska regluverkið skapar árlega ytri yfirferð og landsákvæði ráðlegginga. Ísland er ekki aðili að þessum reglum í dag. Sem EES-ríki fylgir það innri markaðnum en hvorki fjármálareglum né Stöðugleika- og vaxtasáttmálanum. Hvort slíkir utanaðkomandi rammar myndu raunverulega virka hér er umdeilt – reynslan innan ESB sýnir að framfylgd hefur oft verið veik, sérstaklega gagnvart stærri ríkjum. En spurningin sjálf er lögmæt eftir áratuga reynslu af innlendu aðgerðarleysi: Getur utanaðkomandi aðhald skapað þrýsting sem innlent stjórnmálakerfi hefur hingað til ekki getað myndað sjálft? Þegar spurt er hver beri ábyrgð er svarið of oft að enginn geri það í raun. Ekki heldur einstakir stjórnendur sem voru þó dæmdir. Ekki ráðgjafar sem hönnuðu leikflétturnar. Ekki eftirlitsaðilar sem komu of seint. Og síst af öllu þeir kjörnu fulltrúar sem höfðu bæði upplýsingarnar og valdið til að bregðast við en gerðu það ekki. Fólkið í landinu stendur þannig séð því algerlega óvarið fyrir svona svakalegum leka á opinberu fjármagni. Þetta er ekki spurning um einn stjórnmálaflokk eða eitt tímabil. Þetta er spurning um hvort íslenskt stjórnmálakerfi sé fært um að læra af eigin opinberum skýrslum. Hingað til hefur svarið verið nei. Tapið, ca 400 til 800 milljónir á dag - (1000 til 2000 kr/mann á dag) - heldur áfram, ábyrgðin er þynnt út og skattgreiðendur borga himinháan reikninginn – ár eftir ár. Fyrir eldri borgara er reikningurinn um kr. 45.000 að meðaltali á mánuði - sem væri hægt að hækka eftirlaun TR - án útgjalda fyrir ríkissjóð, ef eftirlitið væri í lagi. Höfundur er byggingaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun