Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Agnar Már Másson og Sigurgeir Þorkelsson skrifa 2. ágúst 2026 14:48 Slökkvistarf hefur staðið yfir vegna gróðurelda í Grikklandi. AP Tvær slökkviliðsþyrlur skullu saman í loftinu í Grikklandi í dag. Viðbragðsaðilar voru við slökkvistörf við skógarelda nærri Porto Germeno, vestur af Aþenu. Mikill vindur og hiti hefur sett strik í reikninginn við slökkvistörf.
Tveir voru um borð í hvorri þyrlu, að sögn viðbragðsaðila í Grikklandi. Leit og björgunaraðgerðir eru hafnar. Á myndskeiði má sjá aðra þyrluna hrapa til jarðar í ljósum logum. WATCH: 2 firefighting helicopters collide midair in Greece pic.twitter.com/15HP9DUMwa— BNO News Live (@BNODesk) August 2, 2026 Yfirvöld hafa ekki veitt upplýsingar um ástand áhafnarinnar. Eldurinn kviknaði á föstudag og byrjaði fljótt að breiðast út. Það er metið að um fjörutíu til fimmtíu ferkílómetrar lands hafi þegar brunnið. Eldar loga einnig á fleiri stöðum í Grikklandi, þar á meðal á Krít þar sem tveir slökkviliðsmenn létust í vikunni. Slökkviliðsmenn í Evrópu hafa síðustu vikur barist við skógarelda á þremur helstu vígstöðvum: vindar hafa blásið eldunum lengra inn á svæðið í kringum Aþenu, í Frakklandi hafa skógareldar skilið eftir sig sviðna jörð sem er um fjórum sinnum stærri en París en á Spáni hafa slökkviliðsmenn náð tökum á eldunum. Aldrei hafa gróðureldar verið jafn slæmir í Evrópu og í fyrra þegar tíu þúsund ferkílómetrar urðu eldi að bráð, sem jafngildir um 1/10 hluta af flatarmáli Íslands. Það er fréttastofan AP sem greinir frá og rifjar upp að mannskæðustu eldar álfunnar á þessari öld urðu í Grikklandi árið 2018 þegar 104 létust. Fréttin verður uppfærð.
Grikkland Loftslagsmál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira