Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar 31. júlí 2026 08:32 Í fyrra slösuðust 182 í alvarlegum umferðarslysum og 10 létust samkvæmt skýrslu Samgöngustofu en árið áður slösuðust 228 alvarlega og 13 létust. Sem fyrr voru flest alvarlegu slysin yfir sumarmánuðina og sýna meðaltalstölur sl. 10 ár að sumrin og sérstaklega ferðamestu helgarnar eru hættulegasti tíminn í umferðinni. En af hverju er þetta svona og hvað getum við gert til þess að draga úr slysum á þjóðvegunum? Hér eru nokkur góð ráð um hvernig er best að haga sér í umferðinni til að lágmarka hættuna. Beltin bjarga og hraðinn drepur Af þeim 192 sem slösuðust alvarlega eða létust árið 2025 voru 80 ökumenn eða farþegar í fólksbifreiðum. Það eru ýmsar leiðir til að fækka slysum og draga úr meiðslum í fólksbifreiðum og ber fyrst að nefna að spenna beltin alltaf. Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu velja ungmenni á aldrinum 18-24, í auknu mæli, að sleppa að spenna bílbelti og er það slæm þróun. Mikilvægt er að ræða beltanotkun við unga fólkið því þú fjórtánfaldar líkurnar á að láta lífið í bílslysi með því að nota ekki bílbelti samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu. Hraðakstur er afar hættulegur og hefur kostað mörg mannslíf gegnum tíðina. Erfiðara er að bregðast við mistökum á miklum hraða, hættara við að missa stjórn á bifreiðinni og árekstrar verða harðari. Þá er hætta á missa prófið eða þurfa að borga himinháar sektir alltaf til staðar því sá sem ekur á 125 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. getur átt von á 120.000 króna sekt og 2 punkta. Það er því til mikils að vinna að allir spenni beltin og keyri á löglegum hraða. Athyglisþjófurinn Árið 2025 sögðust 12% ökumanna tala í farsíma án handfrjáls búnaðar stundum eða oft og 25% sögðust gera það sjaldan. Þessi athyglisþjófur er of algengur í umferðinni og veldur hættu þar sem ökumenn eru ekki með fulla athygli við aksturinn. Látum símana vera meðan á akstri stendur og tengjum símann við bílinn eða heyrnatól ef við þurfum nauðsynlega að hringja eða svara símtölum. Að stilla síma á akstursstillingu (Driving focus/Driving mode) áður en haldið er af stað dregur úr áreiti frá símanum og óþarfa truflun. Gilda aðrar reglur í sumarleyfinu? Árið 2020 voru reglur sem segja til um hvort ökumaður geti stjórnað ökutæki örugglega eftir áfengisneyslu breytt og viðmiðið lækkað úr 0,5‰ áfengis í blóði í 0,2‰. Var þetta gert í ljósi fjölda alvarlegra umferðarslysa þar sem ölvunarakstur kemur við sögu. Ölvunarakstur er ekki einkamál þess sem ekur því hann getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir aðra ökumenn, farþega og vegfarendur almennt. Nú um hásumar er rétt að ítreka að það gilda sömu reglur um ölvunarakstur hvort sem þú ert að aka í vinnuna, dvelur í sumarhúsinu, hjólhýsinu, veiðihúsi eða golfskálanum. Eftir einn ei aki neinn, alltaf! Ferðavagnar og húsbílar Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna. Í þessum aðstæðum er ekki hugrekki að halda áfram; það er ábyrgð að snúa við eða bíða. Þegar jafn vindur er 15-19 m/sek geta hviður orðið allt að 25 m/sek og ökutækin fokið útaf veginum. Að lokum má minna á að hafa þolinmæðina með í ferðalagið því hún er þægilegur ferðafélagi þegar langar raðir myndast á þjóðvegum landsins. Njótum og komum heil heim. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Umferð Slysavarnir Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar