Erlent

Rússnesk stýriflaug lík­lega lent í Pól­landi

Eiður Þór Árnason skrifar
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, var nýbúinn að funda með Úkraínuforseta þegar fregnir bárust af flauginni.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, var nýbúinn að funda með Úkraínuforseta þegar fregnir bárust af flauginni. Vísir/EPA

Rússnesk Kh-101 stýriflaug á leið til Úkraínu lenti í Póllandi í nótt. Þetta segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu. Władysław Kosiniak-Kamysz, varnarmálaráðherra Póllands, segir að „líklegast“ hafi verið um að ræða Kh-101 stýriflaug sem skotið er úr lofti.

Ef rétt reynist gæti þetta talist eitt alvarlegasta rof á lofthelgi NATO-ríkis frá því að allsherjarárás Rússa á Úkraínu hófst árið 2022. The Guardian greinir frá þessu. Ekki hefur verið greint frá manntjóni eða skemmdum í Póllandi vegna flaugarinnar.

Minnst átta manns létust og tugir særðust í hörðum árásum Rússa á Úkraínu í nótt.

Ireneusz Nowak, yfirmaður pólska flughersins, segir að Rússar hafi skotið 20 til 22 Kh-101 stýriflaugum inn í Úkraínu í nótt sem hluta af árásum sínum á landið og tvær þeirra hafi talin geta ógnað landsvæði Póllands.

F-16 orrustuþota hafi verið send á loft til að fylgja einni stýriflauginni eftir og flugmaður orðið vitni að því þegar hún hrapaði á óbyggðu svæði.

Flaugin hrapaði nálægt þorpinu Tarnawa-Kolonia, um 80 kílómetrum frá landamærum Póllands og Úkraínu.

Fundið brak um tvo kílómetra frá næstu byggingum

Pólska lögreglan segir að lögreglumenn sem rannsökuðu tilkynningar um háan hvell hafi „fundið brak og dreifðar leifar af óþekktum hlut á akri um tvo kílómetra frá næstu byggingum.“

Atvikið átti sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti fundaði í Lublin með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands.

Verið er að „kortleggja“ slysstaðinn og verður hann rannsakaður ítarlega, að sögn Grzegorz Trusiewicz, saksóknara í borginni Lublin í Póllandi. Hann bætir við að Úkraína hafi óskað eftir því að taka þátt í rannsókn Pólverja.

Tusk boðaði til neyðarfundar

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, boðaði til neyðarfundar um atvikið með háttsettum fulltrúum hersins og neyðarþjónustunnar í morgun.

Hann staðfesti að „flaug“ hafi fallið á pólska grund og segir að „það líti út fyrir“ að það hafi verið rússnesk Kh-101 stýriflaug, líkt og Úkraína greindi frá.

Hann sagði atvikið „alvarlegt“ en staðfesti að ekkert manntjón eða skemmdir hafi orðið. Pólland hafi verið viðbúið að skjóta flaugina niður ef hún hefði haldið áfram flugi sínu inn á pólskt yfirráðasvæði.

Skorti loftvarnarflaugar

Rússar skutu 74 flaugum og 284 drónum á skotmörk í Úkraínu í nótt. Manntjón varð aðallega í Dníprópetrovsk- og Lvív-héruðum.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir þetta sýna enn og aftur að það sé mikilvægast af öllu að geta varið sig gegn loftárásum Rússa. Bætti hann við að Úkraína stæði frammi fyrir „alvarlegum skorti á loftvarnarflaugum frá samstarfsaðilum okkar.“

António Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, fordæmir árásirnar á Úkraínu og rof á lofthelgi Póllands í yfirlýsingu. „Árásargirni Rússa er ógn við öryggi Evrópu í heild sinni.“

Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að það sé „óvenjuleg tilviljun“ að atvikið hafi átt sér stað aðeins nokkrum klukkustundum eftir fund hans með forseta Úkraínu þar sem þeir ræddu tvíhliða samstarf, þar á meðal loftvarnir.

„Selenskí hafði varað mig við því að þeir hefðu nákvæmar upplýsingar um yfirvofandi stórfellda árás Rússa“ á Úkraínu, sagði Tusk.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu

Þrettán eru látnir, þar af fjögur börn, í loftárásum Rússa á borgir Úkraínu í nótt. Að minnsta kosti sex létust í borginni Kryvyi Rih, þar af fimm og tólf ára stúlkur. Þá létust sex í héruðunum Dnipropetrovsk og Poltava, þar af tvö börn. Úkraínumenn hafa verið hvattir til að leita skjóls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×