Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson og Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifa 25. júlí 2026 07:00 Umræður um kosti og galla inngöngu í Evrópusambandið hafa að miklu leyti snúist um væntan ávinning fyrir almenning sem stundum virðist þó ekki endilega byggja á staðreyndum. Ljóst er að til þess að Ísland geti uppfyllt skilyrði evrusamstarfsins og komist til fyrirheitna landsins, landsins þar sem vextir eru lágir, verðbólga er lág og sól skín í heiði, þarf að gera breytingar. Eins og hvergilönd eru yfirleitt er langt þangað. En það er fleira við þessa umræðu að athuga. Það hefur furðu lítið farið fyrir umræðu um að það þurfi að auka sveigjanleika á vinnumarkaði og að við þurfum einfaldlega að sætta okkur við hærra atvinnuleysi. Það er nefnilega ekkert óskýrt hvaða breytingar valdastéttirnar vilja gera til þess að við getum uppfyllt skilyrði fyrir upptöku evru. Þessar breytingar eru skýrar og fjalla um það að það þarf meðal annars að fá verkalýðshreyfinguna til þess að láta af launakröfum sínum í þágu heildarinnar. Þess vegna er hamast á þeim verkalýðsleiðtogum sem hafa talað skýrt gegn aðild að Evrópusambandinu og reynt að gera þá tortryggilega. En ef við eigum að uppfylla skilyrði fyrir upptöku evru þá þarf að fara að leiðbeiningum auðvaldsins og fara fram með „hófsamar launakröfur“. Með því móti verði komist hjá því að fara í höfrungahlaup og launaskrið og svo framvegis. Niðurstaðan verði góð fyrir alla. Minna fer fyrir umræðu um það af hverju þetta er andfélagsleg hugmynd og svokallaðir jafnaðarmenn skulda útskýringar á því fyrirkomulagi sem þeir hyggjast leiða yfir íslenskt launafólk. Við viljum ekki að stéttskipting sé fest í sessi. Við viljum að verka- og láglaunafólk haldi valdastéttum og peningastéttum við efnið. Það er ekki tilviljun að á Íslandi, þar sem verkalýðsfélög ráða miklu um launasetningu, sé svona mikill jöfnuður. Víðast hvar í Evrópu er hann minni en hér á landi. Sveigjanleiki á vinnumarkaði má ekki verða sveigjanleiki í þágu þeirra sem hafa störfin eða í þágu efri millistéttar í þægilegri innivinnu. Sveigjanleiki á vinnumarkaði má ekki verða á kostnað ungs fólks sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði eða á kostnað láglaunafólks sem oft er í viðkvæmri stöðu á vinnumarkaði. Þá viljum við frekar hafa íslenskan sveigjanleika og öflug verkalýðsfélög sem hafa völd og áhrif. Við viljum frekar að þessar ákvarðanir séu teknar á Íslandi en Brussel. Höfundar eru í stjórn Ungra vinstri grænna og stjórnarmeðlimir í félaginu Ung gegn ESB-aðild. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar