Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar 22. júlí 2026 16:30 Fyrrum borgarstjóri og núverandi þingmaður Samfylkingarinnar dregur fram í grein á Vísi í dag tólf ára gamla skýrslu með eftirfarandi fullyrðingum: „Verður ekki önnur ályktun dregin en að upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu muni fela í sér gríðarlegan velferðarábata fyrir Ísland.“ Það er hins vegar athyglisvert að greinarhöfundur lætur vera að fjalla um eina helstu niðurstöðu skýrslunnar sem er eftirfarandi: „Vitanlega kemur kostnaður á móti. Það er fórn að gefa eftir sjálfstæði í peningamálum og einhverju leyti sjálfstæði ríkisfjármála, jafnvel þó íslenskum stjórnvöldum hafi ekki tekist vel upp við beitingu þessara hagstjórnartækja. Líklegt er að í kjölfarið muni fylgja meiri breytileiki í atvinnuleysi samfara hagsveiflum þó langtíma atvinnustig ætti ekki að verða fyrir áhrifum. Þá liggur einnig fyrir að samhliða upptöku evru verða töluverðar stofnanabreytingar að eiga sér stað þar sem hærri nafnlaunahækkanir hérlendis en erlendis munu draga verulegan dilk á eftir sér með verri samkeppnisstöðu og síðan kreppu. ESB er samband fullvalda ríkja og Íslendingar munu áfram þurfa að bera ábyrgð á sinni efnahagsstjórn, og það mun velta á þeim hvernig til tekst að vinna úr nýju stofnanafyrirkomulagi.“ Úttekt Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræður Íslands við ESB. Staðreyndin er sú að með inngöngu í myntbandalag er sjálfstæðri peningastefnu fórnað þar sem kostnaðurinn við hagstjórnarmistök sem kemur niður á samkeppnishæfni Íslands, birtist einkum í formi atvinnuleysis en ekki gengissveiflna. Dæmi um slík mistök blasa við í dag þar sem skattahækkanir núverandi ríkisstjórnar munu draga úr samkeppnishæfni þjóðarbúsins – Ísland er þegar háskattaríki í alþjóðlegum samanburði. Þá er áhugavert að ofangreind skýrsla byggir á samanburði á úreltri peningastefnu sem var rekin í gjaldeyrishöftum og hefur síðan verið endurskoðuð og tekið miklum breytingum í samræmi við tillögu sérfræðihóps sem núverandi seðlabankastjóri sat í ásamt undirritaðri og Illuga Gunnarssyni. Framtíð íslenskrar peningastefnu: Endurskoðun á ramma peningastefnu. Sá mikli „velferðarábati“ sem á að nást með inngöngu í ESB samkvæmt þingmanni Samfylkingar byggir semsagt á efnahagsumhverfi sem er fyrir löngu liðið undir lok. Greinin hunsar með öllu þá farsælu þróun sem orðið hefur á íslenskri peningastefnu frá þeim tíma. Almennt eru þjóðartekjur, atvinnuleysi, atvinnuþátttaka, tekjujöfnuður og fátækt þeir hlutlægu mælikvarðar sem horft er til þegar velferð er metin. Ísland er í hópi tekjuhæstu þjóða heims, atvinnuleysi að jafnaði lágt í samanburði við Evrópusambandsríki og atvinnuþátttaka nánast hvergi hærri. Þá er tekjujöfnuður sá mesti í heimi og fátækt lítil. Með öðrum orðum þá er velferð nánast hvergi meiri en á Íslandi og okkur tókst að vera fremst meðal ríkja án inngöngu í Evrópusambandið. Það væri áhugavert að sjá haldbær rök fyrir því hvernig upptaka evru muni bæta þessa þegar framúrskarandi mælikvarða! Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs, hagfræðingur og áhugamanneskja um velferð á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar