Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2026 11:00 Kevin Keegan bregður á leik með Alex Ferguson þegar þeir voru knattspyrnustjórar Newcastle og Manchester United. Getty/ Adam Butler Manchester United-goðsögnin Sir Alex Ferguson er einn þeirra fjölmörgu sem minnst hafa Kevin Keegan eftir að fréttist að hann hefði tapað stríðinu við krabbamein.
Fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United segir að hann hafi borið gríðarlega virðingu fyrir Kevin Keegan heitnum. Hann nefnir sérstaklega ást knattspyrnugoðsagnarinnar á fótboltanum. Knattspyrnuheimurinn syrgir eftir fréttirnar af andláti Keegan. Fjölskylda hans tilkynnti á mánudag að goðsögn Liverpool og Newcastle hefði látist umkringd sínum nánustu. Sir Alex Ferguson pays tribute to former rival Kevin Keegan Read more 🔗 https://t.co/OlwrtOH6CL— Sky News (@SkyNews) July 21, 2026 Keegan hafði verið með krabbamein síðan í janúar og í júní varð ljóst að sjúkdómurinn hefði dreift sér. Sir Alex Ferguson hrósar nú fyrrum kollega sínum sem Skotinn telur að hafi byggt upp „besta lið Newcastle frá upphafi“. „Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum. Við áttum í mörgum rimmum þegar hann var stjóri Newcastle, en ég verð að segja að starfið sem hann vann þar var frábært,“ sagði Ferguson í viðtali við Track Radio. „Hann fékk líka þrjá frábæra leikmenn til félagsins – David Ginola, Faustino Asprilla og Philippe Albert – og bætti gæðum við liðið. Ég verð bara að segja að áskoranirnar sem við í United stóðum frammi fyrir gegn Newcastle á þeim tíma voru gríðarlegar,“ sagði Ferguson. Í apríl 1996 lentu Ferguson og Keegan í orðaskaki þegar Newcastle keppti við United um deildarmeistaratitilinn. Nú segir Ferguson að þeir tveir hafi hist á krá nokkrum vikum eftir að tímabilinu lauk. Þar lauk rígnum. „Það frábæra við hann var að hann bar ekki kala. Það var frábær eiginleiki sem hann hafði og við áttum frábært kvöld. Þótt ýmislegt hefði gerst vikurnar á undan var það fljótt gleymt. Ég virti hann virkilega fyrir það,“ sagði Skotinn. Keegan er hylltur af öllum knattspyrnuheiminum eftir andlát sitt. 🚨EXCLUSIVE🚨Sir Alex Ferguson joined @VassosA this morning to pay tribute to Kevin Keegan.🏆 THAT 1995 title chase 🏆🎹 A chance encounter 🎹💥 ‘He gave Newcastle their best ever team’ 💥Listen NOW in full, OR get the app to listen again at https://t.co/ORu9iqrMxg pic.twitter.com/QyqJ09dWUL— Track Radio (@wearetrackradio) July 21, 2026
Enski boltinn Manchester United Newcastle United Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Handbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf „Mjög stoltur af sjálfum mér að hafa komist í gegnum þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Sjá meira