Óttast kínverska gervigreind Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 14:53 Gestir ráðstefnu í Sjanghæ kynna sér Kimi K3-módelið. AP/Ng Han Guan Forsvarsmenn bandarískra gervigreindarfyrirtækja eins og OpenAI og Anthropic hafa varað ráðamenn þar í landi við hraðri framþróun gervigreindar í Kína. Í Washington DC stendur nú yfir umræða um það hvort að mögulega eigi að banna bandarískum fyrirtækjum að nota kínverska gervigreind.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að til greina kæmi að beita Kínverja refsiaðgerðum vegna meints þjófnaðar á tækni hvað varðar gervigreind. Verið sé að rannsaka hvort nýjasta kynslóð gervigreindarmódela í Kína byggi á bandarískri tækni. Kínverska fyrirtækið Moonshot AI gaf á dögunum út nýtt gervigreindarmódel sem ber heitið Kimi K3 og í kjölfarið fylgdu lækkanir á mörkuðum vestanhafs. Í grunninn er það rakið til þess að kínversk gervigreindarmódel eru hönnuð til að þurfa minni reiknigetu en þau bandarísku. Það er að hluta til vegna þess að Bandaríkjamenn hafa takmarkað aðgengi Kínverja að öflugustu tölvuflögunum. Þrátt fyrir það er Kimi K3-módelið metið nánast á pari við módel eins og Claude Fable 5 frá Anthropic og GPT-5,6 Sol frá OpenAI, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Svipaðar hreyfingar áttu sér stað á mörkuðum vestanhafs í janúar í fyrra þegar kínverska fyrirtækið Deepseek gaf út nýtt gervigreindarmódel. Bandarísku fyrirtækin jöfnuðu sig þó í kjölfarið og gott betur. Þá takmarkaði þing Bandaríkjanna þó notkun Deepseek í opinberum kerfum. Var það gert á grunni öryggis og áhyggja af notkun persónuupplýsinga. Sjá einnig: Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Forsvarsmenn OpenAI og Anthropic vinna nú að því að setja félögin á markað. Töluverð eftirspurn hefur verið eftir kínverskri gervigreind en ABC News sögðu frá því að forsvarsmenn Moonshot hefðu þurft að takmarka fjölda áskrifenda vegna eftirspurnarinnar, bæði í Kína og erlendis. Saka Kínverja um þjófnað Forsvarsmenn Anthropic kvörtuðu yfir því við yfirvöld Bandaríkjanna fyrr í mánuðinum að kínversk fyrirtæki hefðu stolið tækni frá þeim. Bessent, áðurnefndur fjármálaráðherra, sagði í sjónvarpsviðtali í dag að vísbendingar hefðu fundist sem bentu til þess að kínversku gervigreindarmódelin byggðu á bandarískri tækni. Það væri nú til rannsóknar og reyndist það rétt væri það algerlega óásættanlegt. Sjá einnig: Gruna að DeepSeek byggi á gögnum ChatGPT Bæði Anthropic og OpenAI hafa lengi verið sökuð um þjófnað, þar sem mállíkön fyrirtækjanna byggja að miklu leyti á bókum og öðrum rituðum orðum sem hafa verið notuð til að þjálfa gervigreindarmódelin. Þá sagði Reuters frá því að erindrekar ríkjanna tveggja myndu funda sérstaklega um gervigreind í september. Bessent mun leiða bandarísku sendinefndina þá.
Gervigreind Bandaríkin Kína Tækni Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira