Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 20. júlí 2026 13:01 Allt frá árinu 2020 barðist Flokkur fólksins með aðeins einn borgarfulltrúa ásamt Vinum Vatnsendahvarfsins og fjölmörgum íbúum gegn þeirri útfærslu Arnarnesvegar sem nú er að verða að veruleika. Við lögðum fram fjölda bókana og tillagna, bentum á hagkvæmari lausnir og vöruðum ítrekað við því að framkvæmdin myndi ekki leysa umferðarvandann heldur færa hann til. Um leið bentum við á að náttúra, útivist og lífsgæði íbúa myndu skerðast með framkvæmdinni. Við vorum ekki á móti samgöngubótum en lögðumst gegn slæmri útfærslu. Þetta eru þess vegna ekki eftiráskýringar. Í bókun Flokks fólksins í borgarstjórn í janúar 2021 var bent á að hægt væri að leysa umferðarvandann með mun einfaldari hætti: „Hvers vegna ekki að leysa umferðarvanda við Vatnsendahvarfsveg t.d. með því að setja hringtorg þar? Sú aðgerð væri margfalt ódýrari en þessi framkvæmd og myndi leysa mikið af þeim vandamálum sem verið er að nota sem afsökun og ástæðu fyrir þessum vegi.“ Í sömu bókun var jafnframt varað við þeirri lausn sem nú er gagnrýnd: „Einnig er ekkert talað um vankantana á því að bæta við enn einum ljósastýrðum gatnamótum á Breiðholtsbraut.“ Og við bentum á að verið væri að byggja ákvörðunina á úreltum forsendum: „Fulltrúi Flokks fólksins og Vinir Vatnsendahvarfs hafa fært rök fyrir mikilvægi þess að fá nýtt umhverfismat. Matið sem styðjast á við er 18 ára og margt hefur breyst á þeim tíma.“ Þetta var allt sagt áður en framkvæmdir hófust. Nú vakna sömu spurningarnar Framkvæmdinni er enn ekki að fullu lokið en fyrstu dagarnir hafa þegar vakið upp spurningar. Í Morgunblaðinu mánudaginn 20. júní er fjallað um umferðarteppur og tafir við nýju gatnamótin á Breiðholtsbraut. Athygli vekur að bæði Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi og Framsóknarflokkurinn lögðu ríka áherslu á þessa útfærslu. Nú kallar Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi sjálfur eftir endurskoðun á hönnuninni og vill mislæg gatnamót. Mestu vonbrigðin Það sem veldur mér mestum vonbrigðum er ekki aðeins niðurstaðan heldur hvernig staðið var að skipulagsferlinu og hvernig komið var fram við íbúa í hverfinu og nágrenni. Íbúar sendu inn ítarlegar athugasemdir. Vinir Vatnsendahvarfsins unnu ómetanlegt starf við að safna gögnum og benda á aðrar leiðir. Flokkur fólksins lagði fram bókun eftir bókun og tillögu eftir tillögu. Oft var vísað til þess að framkvæmdin væri hluti af Samgöngusáttmálanum eins og það eitt ætti að binda enda á umræðuna. En samningar eiga ekki að koma í stað faglegrar umræðu. Þeir eiga ekki heldur að leiða til þess að íbúar upplifi að á þá sé ekki hlustað. Traðkað á náttúrunni Þessi framkvæmd snerist aldrei eingöngu um veg. Hún snerist líka um eitt verðmætasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Fjölbreytt lífríki og framtíðarsýn um Vetrargarð sem átti að verða vettvangur útivistar, leikja og samveru fjölskyldunnar. Við bentum á að fyrirhuguð framkvæmd myndi raska náttúru sem ekki yrði endurheimt, auka hávaða, svifryk og loftmengun nær íbúum, Grafa undan þeirri framtíðarsýn að á svæðinu risi Vetrargarður fyrir börn og fjölskyldur. Staðsetning á slíkum vettvangi nánast upp við hraðbraut með tilheyrandi hávaða og loftmengun þótti okkur einfaldlega röng stefna. Þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir var keyrt áfram á grundvelli umhverfismats frá árinu 2003 – þótt íbúabyggð, útivist og þekking á umhverfismálum hafi tekið stórstígum breytingum á þessum tveimur áratugum. Ekki var hlustað. Þess í stað var farin sú leið sem nú virðist þegar kalla á endurskoðun. Lærdómurinn Þessi grein er ekki skrifuð til að segja: „Við höfðum rétt fyrir okkur.“ Það gleður engan þegar áhyggjur sem settar voru fram af heilindum virðast rætast og afleiðingarnar bitna á íbúum, skattgreiðendum og náttúrunni. Framkvæmdin við Arnarnesveg ætti að kenna okkur að samráð verður að vera raunverulegt. Það verður að hlusta á íbúa áður en ákvarðanir eru teknar. Ekki eftir að milljarðar hafa verið settir í framkvæmd og náttúran goldið þess dýru verði. Á vef mínum, kolbrunbaldurs.is, má finna bókanir, tillögur og ítarlega umfjöllun allt frá árinu 2020. Þar sést svart á hvítu að varnaðarorðin komu ekki eftir á. Þau lágu fyrir áður en fyrsta skóflustungan var tekin. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Flokkur fólksins Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar