„Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ Árni Gísli Magnússon skrifar 19. júlí 2026 20:33 ÍBV laut í lægra haldi á Akureyri. vísir/guðmundur Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, segir lið sitt hafa verið lítið og Þór/KA átt sigurinn skilið þegar liðin mættust á VÍS vellinum á Akureyri í Bestu deild kvenna. Þór/KA fór með 2-1 sigur af hólmi.
Hvað skildi liðin að í dag? „Það var hugarfar norðankvenna í fyrri hálfleik. Þær bara jörðuðu okkur megnið af fyrri hálfleik, við vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja. Þetta var svona hlutur sem við vorum búnar að ræða í gær, þær vissu að við vorum þreyttar, þær myndu keyra á okkur. Þegar maður er þreyttur þá er maður aðeins vitlaus og látum það samt ekki fara inn í hausinn á okkur en þær komust nú hressilega inn í hausinn á okkur í fyrri hálfleik. Síðan ræddum við vel saman í hálfleik og byrjum seinni hálfleikinn og fáum fínasta færi en svo mark í andlitið sem gerir þetta erfitt.“ „Svo bara varð þetta týpískur leikur; þær svona halda fengnum hlut og við að reyna sækja jöfnunarmark og við spiluðum bara kjánalegan sóknarleik, vorum alltaf neglandi boltanum beint á hafsentana þeirra. Eins og ég sagði við Örnu Sif (Ásgrímsdóttur) áðan að það er rosalega gáfulegt að þruma honum alltaf þar sem leikmaður númer 11 hjá Þór/KA er, hún hefur tekið nokkra skallaboltana um ævina. Þetta var betra þegar við settum hann út í víddina og fengum fyrirgjafir en bara sanngjarn sigur Þór/KA í dag held ég, bara óska þeim til hamingju.“ Jón Ólafur talar um að hafa vitað að Þór/KA myndi keyra á ÍBV liðið þar sem þær væru þreyttar en úti á við litu leikmenn ekki út fyrir að hafa ekki verið undirbúnir fyrir þetta. „Við vorum bara ekki tilbúnar í þetta. Þær voru bara mikið grimmari en við og þær hittu hér á sinn dag en við ekki og þegar maður er ekki á sínum degi og maður fær lið með svona gott hugarfar á móti manni þá bara verður maður undir, sá dagur var okkar dagur í dag.“ ÍBV minnkaði muninn í 2-1 eftir tæpan klukkutíma en það var ekki fyrr en undir lok leiks sem alvöru leit að jöfnunarmarki hófst. „Við vorum búin að gefa fyrirskipun miklu fyrr um að gera þetta en eins og ég segi þegar maður er þreyttur fyrir og orðin dauðþreyttur í leiknum þá svona kannski bregst maður ekki alltaf rétt við og þetta var bara erfiður leikur fyrir okkur í dag og eins og ég segi þegar maður er þreyttur er erfitt að taka góðar ákvarðanir. Uppstaðið eins og ég sagði áðan, þetta er bara sanngjarn sigur Þór/KA og bara til hamingju með það.“ Jón Ólafur segir leikmannamál vera klár og einn erlendur leikmaður bætist við. „Það er allt klárt í raun. Ágústa María [Valtýsdóttir] er komin á láni frá Val og svo er Jessica Hinton, erlendur leikmaður sem ég held að fái leikheimild á morgun held ég þannig það er sú viðbót sem við verðum með það sem eftir er af mótinu.“
Besta deild kvenna ÍBV Þór Akureyri KA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira