Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar 19. júlí 2026 07:30 Það vakti verðskuldaða athygli þegar Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, lýsti því yfir að hann hefði snúist í afstöðu sinni til aðildar Noregs að Evrópusambandinu. Bondevik barðist ötullega gegn aðild í báðum þjóðaratkvæðagreiðslunum, árin 1972 og 1994, en telur nú Noregi best borgið innan sambandsins vegna gjörbreyttrar heimsmyndar – árásargjarns Rússlands, vaxandi einangrunarhyggju í Bandaríkjunum og þeirrar staðreyndar að Evrópa verður að standa á eigin fótum. Hann viðurkennir jafnframt að óttinn við miðstýrt stórríki reyndist ástæðulaus. Sambandið er mun sveigjanlegra en andstæðingar óttuðust. Norræn samstaða á óvissutímum Röksemdir Bondeviks eru fyrst og fremst pólitískar, enda er norskt atvinnulíf þegar með greiðan aðgang að innri markaði ESB. Spurningin um aðild snýst um framtíðarsýn. Hvar eiga Norðurlöndin að standa þegar heimurinn gengur úr skorðum? Danmörk, Svíþjóð og Finnland eru þegar í ESB. Eftir inngöngu Finna og Svía í NATO standa öll Norðurlöndin sameinuð þar – staða sem áður þótti óhugsandi. Aðeins Ísland og Noregur eru eftir utan ESB. Ákveði þjóðirnar að stíga það skref yrðu Norðurlöndin sameinuð á báðum hornsteinum vestrænnar samvinnu. Afstöðu Bondeviks má auðveldlega heimfæra á Ísland. Bæði löndin byggja velmegun sína á nánum tengslum við innri markað Evrópu í gegnum EES, en við tökum upp megnið af löggjöf sambandsins án þess að eiga sæti við borðið þar sem hún er samin. Spurningin er því ekki hvort við viljum evrópskt samstarf, heldur hvort við tökum þátt í að móta leikreglurnar. Þjóðin á síðasta orðið Í aðildarviðræðum verður sérstaða Íslands, einkum hvað varðar náttúruauðlindir, að vera í forgrunni. Ísland er frjálslynt lýðræðisríki og á tímum þegar frelsi og alþjóðalög eiga undir högg að sækja er okkur sem smáþjóð best borgið með því að standa vörð um þau í samvinnu við líkt þenkjandi þjóðir. Við göngum til samstarfs við Evrópu af því að við eigum þar erindi. Þessi vegferð snýst í senn um að tryggja efnahagslegan stöðugleika, lægri vexti fyrir íslensk heimili og að marka Íslandi sess sem virkum þátttakanda í pólitískri samvinnu sem tryggir lýðræði, frelsi og mannréttindi. Bondevik leggur einmitt til sömu leið fyrir Norðmenn – að þjóðin kjósi fyrst um viðræður og síðan um niðurstöðuna. Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um aðild, heldur um að ljúka viðræðum og leggja fullbúinn samning í dóm þjóðarinnar. Enginn kaupir köttinn í sekknum. Þjóðin á alltaf síðasta orðið – segjum því já við nýjum tækifærum 29. ágúst. Höfundur situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Það vakti verðskuldaða athygli þegar Kjell Magne Bondevik, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, lýsti því yfir að hann hefði snúist í afstöðu sinni til aðildar Noregs að Evrópusambandinu. Bondevik barðist ötullega gegn aðild í báðum þjóðaratkvæðagreiðslunum, árin 1972 og 1994, en telur nú Noregi best borgið innan sambandsins vegna gjörbreyttrar heimsmyndar – árásargjarns Rússlands, vaxandi einangrunarhyggju í Bandaríkjunum og þeirrar staðreyndar að Evrópa verður að standa á eigin fótum. Hann viðurkennir jafnframt að óttinn við miðstýrt stórríki reyndist ástæðulaus. Sambandið er mun sveigjanlegra en andstæðingar óttuðust. Norræn samstaða á óvissutímum Röksemdir Bondeviks eru fyrst og fremst pólitískar, enda er norskt atvinnulíf þegar með greiðan aðgang að innri markaði ESB. Spurningin um aðild snýst um framtíðarsýn. Hvar eiga Norðurlöndin að standa þegar heimurinn gengur úr skorðum? Danmörk, Svíþjóð og Finnland eru þegar í ESB. Eftir inngöngu Finna og Svía í NATO standa öll Norðurlöndin sameinuð þar – staða sem áður þótti óhugsandi. Aðeins Ísland og Noregur eru eftir utan ESB. Ákveði þjóðirnar að stíga það skref yrðu Norðurlöndin sameinuð á báðum hornsteinum vestrænnar samvinnu. Afstöðu Bondeviks má auðveldlega heimfæra á Ísland. Bæði löndin byggja velmegun sína á nánum tengslum við innri markað Evrópu í gegnum EES, en við tökum upp megnið af löggjöf sambandsins án þess að eiga sæti við borðið þar sem hún er samin. Spurningin er því ekki hvort við viljum evrópskt samstarf, heldur hvort við tökum þátt í að móta leikreglurnar. Þjóðin á síðasta orðið Í aðildarviðræðum verður sérstaða Íslands, einkum hvað varðar náttúruauðlindir, að vera í forgrunni. Ísland er frjálslynt lýðræðisríki og á tímum þegar frelsi og alþjóðalög eiga undir högg að sækja er okkur sem smáþjóð best borgið með því að standa vörð um þau í samvinnu við líkt þenkjandi þjóðir. Við göngum til samstarfs við Evrópu af því að við eigum þar erindi. Þessi vegferð snýst í senn um að tryggja efnahagslegan stöðugleika, lægri vexti fyrir íslensk heimili og að marka Íslandi sess sem virkum þátttakanda í pólitískri samvinnu sem tryggir lýðræði, frelsi og mannréttindi. Bondevik leggur einmitt til sömu leið fyrir Norðmenn – að þjóðin kjósi fyrst um viðræður og síðan um niðurstöðuna. Atkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki um aðild, heldur um að ljúka viðræðum og leggja fullbúinn samning í dóm þjóðarinnar. Enginn kaupir köttinn í sekknum. Þjóðin á alltaf síðasta orðið – segjum því já við nýjum tækifærum 29. ágúst. Höfundur situr í stjórn Evrópuhreyfingarinnar.
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar