Willum vill fara norsku leiðina Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. júlí 2026 13:30 Willum Þór Þórsson er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. vísir / ÍVAR Norðmenn hafa náð mögnuðum árangri á sviði íþrótta að undanförnu og „norska módelið“ hefur vakið mikla athygli. Forseti ÍSÍ, Willum Þór Þórsson, segir Ísland vera með svipaða stefnu en ekki fylgja henni nægilega vel eftir. Willum vill sjá fleiri ungmenni æfa fleiri en eina íþrótt, fækka ferðalögum milli landshluta og auka við afreksstarf.
Noregur fékk flest verðlaun allra þjóða á Vetrarólympíuleikunum í byrjun árs og náði alla leið í átta liða úrslit HM í fótbolta. Mörg fleiri dæmi um framúrskarandi norskt íþróttafólk má finna, á sviði golfs (Viktor Hovland), tennis (Casper Ruud), skákborðsins (Magnus Carlsen) og hlaupa (Ingebrigtsen bræður), svo eitthvað sé nefnt. Hvers vegna hafa Norðmenn, þrátt fyrir fámenni, náð þessum ótrúlega árangri í íþróttum? Hvað felst í þessu norska íþróttamódeli? Willum Þór, forseti ÍSÍ, svaraði því í Bítinu á Bylgjunni. Willum nefndi Erling Haaland, einn besta fótboltamann heims, sem dæmi um árangur norska íþróttamódelsins. Haaland æfði fleiri en eina íþrótt sem barn í Noregi. Hann er einnig með bakgrunn í handbolta, frjálsum íþróttum og vetraríþróttum en hefur náð hæstu hæðum í fótboltanum, þrátt fyrir að hafa ekki einblínt á fótbolta fyrr en hann var fjórtán ára gamall. Erling Haaland er dæmi um fjölíþróttabarn sem náði frábærum árangri á fullorðinsárum í fótbolta. Buda Mendes/Getty Images Sömuleiðis sagði Willum stóran þátt í norska módelinu að veita ekki verðlaun til ungra barna, eins og í Noregi þar sem bikarar eru ekki kynntir til sögunnar fyrr en um þrettán ára aldur. Þar sé einnig lögð áhersla á að fækka ferðalögum milli landshluta og hafa fleiri svæðisbundnar keppnir fyrir börn. „Það er hluti af þessu módeli og við ættum örugglega að horfa inn í það. Ég heyri það, í kjölfari af þessu stefnumótunarsamtali sem við fórum í eftir síðasta íþróttaþing, að um allt land er áhersla á aukinn kostnað sem snýr að dýrum ferðalögum sem fylgja mótahöldum. Og það að krakkarnir fái að prófa, taka pressuna af þeim í keppni. Við erum með þetta í stefnunni en erum ekki að fylgja því eftir,“ segir Willum. Hann leggur sérstaka áherslu á ágæti þess að æfa fleiri en eina íþrótt. „Hér áður fyrr voru heilu kynslóðirnar í árstíðabundnum íþróttum. Þú varst með sumaríþróttir, vetraríþróttir og fólk prófaði flest. Ég get alveg rakið það, okkar besta íþróttafólk í sögunni var í fleiri íþróttagreinum og stóð sig vel. Þetta hefur breyst því framboðið er þannig í hverri grein að það er æft oft í viku, vissulega með faglegum áherslum, en það er bara ekki tími fyrir krakkana að æfa fleiri en eina grein… Sum félög passa upp á þetta, þannig að krakkarnir geti prófað og farið á milli greina, en stundum bara stangast þetta á. Framboðið er orðið það mikið í hverri grein og allt árið um kring. Kostnaðurinn hefur aukist og tómstundastyrkirnir duga varla fyrir fleiri en einni grein. Þannig að við erum ekki að fylgja því sem við segjumst ætla að gera.“
ÍSÍ Íþróttir barna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Virkar eins og forfallakennari Willum vill fara norsku leiðina Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Mbappé klár í slaginn en Spánverjar líklegri til sigurs Bróðir Yamals slær í gegn á HM Conor vill berjast aftur eftir 69 sekúndna bardagann Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu „Þetta mun breyta öllu fyrir okkur“ Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Rice búinn að hrista af sér magakveisuna og getur byrjað gegn Argentínu Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Dagskráin: Halda botnliðin áfram að bíta frá sér? Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Stærsta stjarnan vill breyta hjólreiðadagatalinu vegna mikils hita Tekinn við króatíska landsliðinu á ný Hættir vegna höfuðmeiðsla og áhrifa þeirra á andlega heilsu hans Sjá meira