Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Jón Þór Stefánsson skrifar 14. júlí 2026 12:26 Mynd úr skýrslu rannsóknarnefndar af vettvangi. RNSA Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi með því að verða valdur af umferðarslysi þar sem tveir létust og einn slasaðist.
Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum hafa upplýsingar um hvar, og hvenær atvik málsins áttu sér stað verið afmáð að mestu, en samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða slys sem varð við afleggjara Suðurlandsvegar að Skaftafelli þann 12. janúar 2024. Manninum er gefið að sök að hafa ekið of hratt miðað við aðstæður og án nægilegrar aðgæslu og varúðar, en vegurinn var háll. Jafnframt var ástand bílsins ábótavant. Hann mun ekki hafa haft fullt vald á bílnum til þess að stöðva á þeim hluta vegarins sem fram undan var, og missti því stjórn á bílnum sem fór yfir á öfugan vegarhelming þar sem hann hafnaði á öðrum bíl. Ökumaður þess bíls slasaðist og tveir farþegar hans létust. Ökumaðurinn er krafinn um að greiða einum ættingja átta milljónir króna, og dánarbúi fólksins fjórar milljónir króna. Rannsóknarnefnd samgönguslysa fjallaði um málið síðasta sumar. Niðurstaða hennar, sem hefur ekki gildi fyrir dómi, komst að þeirri niðurstöðu að meginorsök slyssins hafi verið að ökumaðurinn sem er ákærður hafi misst stjórn á bílnum sínum. Þó voru fleiri orsakir gefnar upp, líkt og ástand bílanna tveggja sem lentu saman. Þá kom fram að langan tíma hafi tekið viðbragðsaðila að fara á vettvang, eða 44 mínútur.
Samgönguslys Umferðaröryggi Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira