Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. júlí 2026 06:43 Bandaríkjamenn hyggjast hefja gjaldtöku á Hormuz-sundi. Getty/Elke Scholiers Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa.
Forsetinn sagði einnig að Hormússund yrði áfram opið „með eða án Íran“ en boðaði gjaldtöku af hálfu Bandaríkjanna til að standa straum af kostnaði við að halda sundinu opnu. Tollurinn verður 20 prósent. Um er að ræða algjöran viðsnúning af hálfu Bandaríkjastjórnar, sem hefur hingað til sagt að umferð um sundið ætti að vera gjaldfrjáls og fordæmt samningaviðræður milli Íran og Óman um sameiginlega gjaldtöku. Gera má ráð fyrir að yfirlýsing forsetans muni valda nokkru fjaðrafoki en vert er að hafa í huga að engar upplýsingar liggja fyrir um það hvernig Bandaríkjastjórn hyggst tryggja umferð um sundið, viðhafa eftirlit eða haga gjaldtökunni. Íranir hafa brugðist við fregnunum en utanríkisráðherrann Abbas Araqchi sagði að stjórnvöld í Tehran myndu ávallt „vernda“ sundið, eins og það er orðað, og þá sagði herinn að afskipti Bandaríkjamanna yrðu ekki liðin. Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum greindu frá því að íranskar eldflaugar hefðu hæft tvö olíuflutningskip á leið um sundið. Einn lést og átta særðust. Olíuverð hefur tekið kipp og ekki verið hærra í fjórar vikur. Verðið á Brent-hráolíu stendur í tæpum 85 dollurum.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin Donald Trump Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira