Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Eiður Þór Árnason skrifar 12. júlí 2026 19:03 Palestínumenn safnast saman við staðinn þar sem ísraelskur herdróni gerði árás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg. Að minnsta kosti fjórir Palestínumenn létust og einn særðist, að sögn yfirmanna á Shifa-sjúkrahúsinu. AP/Jehad Alshrafi Minnst sex Palestínumenn fórust í árásum Ísraelshers á Gasa í dag, þar á meðal níu ára stúlka. Þá særðust yfir tólf aðrir, að sögn heilbrigðisyfirvalda á svæðinu. Drónaárás á járnsmiðju í Sabra-hverfinu í Gasaborg varð minnst fjórum Palestínumönnum að bana, að sögn fulltrúa Shifa-sjúkrahússins sem fórnarlömbin voru flutt á.
Ísraelsher viðurkenndi að hafa gert árás á svæðið og sagði að skotmarkið hefði verið „innviðir hryðjuverkamanna“, án þess að útskýra það nánar. Síðar sagði herinn að hann hefði gert árás á vopnaframleiðslustöð Hamas. AP-fréttaveitan greinir frá þessu. Herinn skipaði Palestínumönnum að rýma svæðið eftir fyrstu árásirnar. Um klukkustund síðar voru gerðar harðar loftárásir á sömu járnsmiðju. Sjúkraflutningaþjónusta Rauða hálfmánans í Palestínu sagði að árásirnar í Gasaborg hefðu sært fjórtán manns. Hin níu ára Tala Abu Matar varð fyrir byssuskoti Ísraelshers í flóttamannabúðum í miðhluta Gasa í dag og lést, að sögn heilbrigðisráðuneytisins. Ísraelsher sagðist ekki hafa vitneskju um slíkt atvik. Palestínumenn við járnsmiðjuna sem Ísraelsher gerði árás á í dag.AP/Jehad Alshrafi Þá fórst einn Palestínumaður í árás Ísraela á flóttamannatjald í Khan Younis í suðurhluta Gasa, að sögn yfirmanna á Nasser-sjúkrahúsinu, þangað sem líkið var flutt. Ísraelsher gekkst við því að hafa gert árás á því svæði og kallaði hana „hluta af hefðbundnum aðgerðum“. Herinn sagðist ekki hafa vitneskju um mannfall. Minnst 260 börn hafi fallið frá því að vopnahlé tók gildi Árásir Ísraela hafa dregist verulega saman síðan vopnahlé tók gildi þann 10. október en eiga sér enn stað nær daglega, að sögn AP-fréttaveitunnar. Ísraelsher segir að skotmörk sín tengist Hamas og öðrum vígamönnum og fullyrðir oft að þeir hafi verið að skipuleggja árásir. Árásir Ísraels hafa orðið fjölmörgum almennum borgurum að bana. Minnst 1.098 Palestínumenn, þar af að minnsta kosti 260 börn, hafa verið drepnir frá því vopnahléið tók gildi, að sögn heilbrigðisráðuneytisins á Gasa. Fimm ísraelskir hermenn eru sagðir hafa fallið á sama tíma. Á vettvangi í dag. Ap/Jehad Alshrafi Yfir sjötíu þúsund fallið í árásum Ísraels frá því í október 2023 Heilbrigðisráðuneytið segir að 73.221 Palestínumaður hafi fallið í aðgerðum Ísraela sem hófust sem svar við árás vígamanna á Ísrael undir forystu Hamas þann 7. október 2023. Til samanburðar fórust um 1.200 manns í þeim aðgerðum í Ísrael og voru 251 til viðbótar teknir í gíslingu. Heilbrigðisyfirvöld á Gasa eru, líkt og önnur stjórnvöld þar, leidd af Hamas en stofnanir Sameinuðu þjóðanna og óháðir sérfræðingar telja sjúkraskrár þar almennt vera áreiðanlegar. Ekki er gerður greinarmunur á herafla og almennum borgurum en konur og börn eru sögð vera um helmingur látinna. Samningaviðræðum milli Ísraels og Hamas um útfærslu annars áfanga vopnahlésins hefur lítið miðað áfram en þar hefur verið rætt um afvopnun Hamas og enduruppbyggingu á Gasa. Yfir tvær milljónir íbúa voru á Gasa en flestir eru enn á flótta og búa margir í byggingarústum eða yfirfullum tjaldabúðum með litla eða enga grunnþjónustu.
Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Tengdar fréttir Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Fjórir voru handteknir á Vesturbakkanum í Palestínu grunaðir um að hafa ráðist á erlenda blaðamenn. Talið er að fjórmenningarnir séu ísraelskir landnemar. 11. júlí 2026 15:22 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Sjá meira
Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Fjórir voru handteknir á Vesturbakkanum í Palestínu grunaðir um að hafa ráðist á erlenda blaðamenn. Talið er að fjórmenningarnir séu ísraelskir landnemar. 11. júlí 2026 15:22