Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Birgir Olgeirsson skrifar 8. júlí 2026 15:39 Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir Ísland standa sterkt í samanburði við ESB-ríkin á flestum helstu lífskjara- og efnahagsmælikvörðum, en háir vextir og verðbólga séu skýrustu veikleikarnir. Vísir/Vilhelm Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext.
Skýrslan var unnin fyrir Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál, RSE, og Áfram Ísland. Tilgangur hennar er sagður vera að varpa ljósi á stöðu og þróun lífskjara og efnahagsmála á Íslandi í samanburði við ESB-ríkin í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Greiningin byggir á opinberum gögnum sem voru tiltæk haustið 2025 eða síðar, meðal annars frá Eurostat, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Hagstofu Íslands, Seðlabanka Íslands, OECD og Sameinuðu þjóðunum. Konráð segir að stóra myndin sé skýr. „Heilt yfir stöndum við mjög vel að vígi miðað við ESB-ríkin. Okkur hefur vegnað vel á síðustu tíu til tuttugu árum og lengur,“ segir Konráð. Í skýrslunni kemur fram að Ísland sé ofarlega í samanburði þegar horft er til landsframleiðslu og einkaneyslu á mann. Þar segir að ef Ísland væri ESB-ríki væri það með fjórðu mestu landsframleiðslu á mann og næstmestu einkaneyslu á mann, miðað við kaupmáttarleiðréttar tölur. „Við erum einfaldlega í toppsætunum. Kaupmáttur, hvort sem horft er til launa eða ráðstöfunartekna, er með því mesta sem gerist,“ segir Konráð. Hann segir að kaupmáttur hafi vaxið hratt hér á landi í evrópskum samanburði, sérstaklega yfir lengri tíma. Í skýrslunni kemur fram að helst þurfi að horfa til fyrrum austantjaldsríkja, þar sem lífskjör voru áður mun lægri, til að finna sambærilegan eða meiri kaupmáttarvöxt. Konráð bendir þó á að þróunin hafi veikst á síðustu misserum. „Á þessari öld höfum við komið mjög vel út en síðustu eitt til þrjú ár hefur kaupmáttarvöxturinn verið hægur,“ segir hann. Verðlag á Íslandi er oft nefnt sem einn helsti galli íslenska hagkerfisins. Konráð segir hins vegar að myndin breytist þegar verðlag sé sett í samhengi við tekjur. „Ef þú berð saman verðlag og tekjur ertu í raun að skoða kaupmátt. Þá sést að verðlagið er ekki endilega hátt miðað við tekjurnar. Verð á vörum og þjónustu er almennt lágt í því samhengi,“ segir hann. Staða vinnumarkaðarins er einnig dregin fram sem styrkleiki Íslands. Samkvæmt skýrslunni er atvinnuleysi minna hér en almennt í ESB og atvinnuþátttaka með því mesta sem gerist. Sérstaklega er bent á stöðu ungs fólks, þar sem Ísland kemur vel út í samanburði við önnur Evrópuríki. „Við höfum verið með sterkan vinnumarkað, sérstaklega hjá ungu fólki. Þegar horft er til ungs fólks sem er hvorki í skóla, vinnu né þjálfun höfum við verið í sérflokki,“ segir Konráð. Helsti veikleiki Íslands í samanburðinum er hins vegar há verðbólga, hátt vaxtastig og mikil vaxtabyrði heimila. Í skýrslunni segir að Ísland standi höllum fæti þegar kemur að fjármagnskostnaði og að vaxtabyrði heimila sé mikil vegna hárra vaxta. Konráð segir vandann að stórum hluta heimatilbúinn. „Augljósasti dragbíturinn er að við höfum búið við háa vexti og ekki náð nógu góðum tökum á verðbólgunni. Í mínum huga skýra launahækkanir mikið af því, þótt skýringarnar séu flóknari. Verkefnið er að ná verðbólguvæntingum varanlega niður,“ segir hann. Í skýrslunni er jafnframt tekið fram að samanburður milli landa geti verið vandmeðfarinn og að opinberar hagtölur séu iðulega endurskoðaðar. Konráð segir því mikilvægt að horfa á marga mælikvarða í einu en ekki draga stóra ályktun af einni tölu. Niðurstaða hans er engu að síður sú að Ísland standi sterkt. „Okkur hefur vegnað vel. Það dregur ekkert undan því. En árangurinn er ekki sjálfsagður og veikleikarnir eru líka skýrir,“ segir Konráð.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Efnahagsmál Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira