Sneri sér við, greip í spaðann á Kristrúnu og gekk út Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. júlí 2026 14:50 Trump tók í höndina á Kristrúnu eftir myndatökuna áður en hann gekk af sviðinu. Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins fór fram í Ankara í Tyrklandi í gær og í morgun en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn þar. Athygli vakti að eftir myndatöku með leiðtogum bandalagsins sneri Trump sér við og tók í spaðann á Kristrúnu Frostadóttur en engum öðrum.
Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hófst í Ankara í Tyrklandi í gær en í forgrunni fundarins voru aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála, jafnari skipting byrða og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu. Fulltrúar Íslands á fundinum voru Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Sjá einnig: Trump fer hamförum í Ankara Mest hefur þó farið fyrir Donald Trump sem hefur verið sérstaklega yfirlýsingaglaður. Á blaðamannafundi með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í morgun sagði hann viðræður Bandaríkjanna við Íran komnar á endastöð og sagðist afar óánægður með bandalagið og einstaka ríki þess og lofaði á sama tíma Kina og Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands. Við upphaf fundarins í gær ítrekaði hann að Grænland ætti að tilheyra Bandaríkjunum, sagði Danmörku ekki verja nægilegum fjármunum í að hjálpa Grænlandi og landið væri mikilvægt Bandaríkjunum. Kristrún sagði ummæli Trump ekki þurfa að koma á óvar og sagðist vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi. Íslensk stjórnvöld væru skýr í sinni afstöðu þegar kæmi að málinu, Grænland tilheyrði Grænlendingum og þeir vildu ekki vera hluti af Bandaríkjunum. Á myndbandi frá fundinum mátti síðan sjá þegar leiðtogarnir stilltu sér allir upp fyrir myndatöku. Að henni lokinni sneri Trump sér við, leit í kringum sig, tók í höndina á Kristrúnu og gekk svo út.
NATO Donald Trump Bandaríkin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Grænland Danmörk Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira