Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. júlí 2026 12:01 Arnar segir Infantino ekki hafa haft áhrif á afléttingu banns Balogun. Donald Trump segist hafa fengið banninu aflétt í gegnum forseta FIFA. Vísir/Getty Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, gaf lítið fyrir það að Gianni Infantino hafi haft áhrif á afléttingu banns Folarin Balogun, framherja bandaríska landsliðsins, á miðju heimsmeistaramóti.
Sú fordæmalausa ákvörðun var tekin í aðdraganda leiks Bandaríkjanna og Belgíu í 16-liða úrslitum á HM að leikbanni Balogun var hnekkt og hann fékk að spila leikinn. FIFA sætti mikilli gagnrýni vegna málsins og sagði belgíska knattspyrnusambandið FIFA meðal annars hafa brotið eigin lög og reglur með því að afhenda engin gögn um niðurstöðuna eða rökstuðning. Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir stoltur að hann hafi persónulega hringt í Gianni Infantino vegna málsins og fengið banninu aflétt. Sú fullyrðing vakti spurningar um pólitísk afskipti af ákvörðunum FIFA, en slíkt er bannað með öllu samkvæmt lögum og reglum Alþjóðasambandsins. UEFA gagnrýndi í kjölfarið FIFA harðlega: „Við lýsum yfir vantrú okkar á slíkri fordæmalausri, óskiljanlegri og óréttlætanlegri ákvörðun,“ segir í yfirlýsingu UEFA. Málið bar á góma í HM-stofunni á RÚV í gær. Rætt hafði þá verið um ásakanir Egypta um samsæri er Argentína fór áfram. „Við erum búnir að sjá á þessu móti forseta FIFA fella niður leikbann,“ fullyrti Hörður Magnússon og átti þar við um bann Balogun. Arnar var ekki sammála því að Infantino hefði haft neitt með niðurfellingu bannsins að gera og var tónn hans í samræmi við yfirlýsingu Infantino um málið; að aganefndir og dómstólar FIFA væru sjálfstæðir. „Það er ekki forseti FIFA sem fellir niður leikbann,“ svaraði landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlagusson. „Þetta eru nefndir, það eru 600 manns sem vinna hjá FIFA.“ „Þetta virkar ekki þannig. Það eru 600 manns og stjórnir hjá FIFA og nefndir sem sjá um þetta. Þegar við erum komin í þessar samsæriskenningar erum við að lítillækka leikinn okkar,“ sagði Arnar einnig. „Lítillækkar leikinn okkar? FIFA hefur alfarið séð um það sjálft,“ sagði Hörður. Umræðuna má sjá hér á vef RÚV og hefst eftir um 15 mínútur. Umræðuna má einnig sjá í myndskeiði af Facebook-síðu RÚV Íþrótta að ofan.
FIFA KSÍ HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Sjá meira